Skip to main content
Aldan

Kosning er hafin

By June 12, 2015No Comments

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning vegna starfa á almennum vinnumarkaði hófst kl. 08:00 í morgun og mun hún standa til hádegis þann 22. júní nk. Kjörgögn hafa verið send félagsmönnum og eru þeir hvattir til að kynna sér kjarasamninginn vel og hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning vegna starfa á almennum vinnumarkaði hófst kl. 08:00 í morgun og mun hún standa til hádegis þann 22. júní nk. Kjörgögn hafa verið send félagsmönnum og eru þeir hvattir til að kynna sér kjarasamninginn vel og hafa samband ef einhverjar spurningar vakna. Þá er rétt að benda á heimasíðu SGS sem inniheldur mikið af gagnlegum upplýsingum um samninginn.

Eins og áður sagði þá er um rafræna atkvæðagreiðslu að ræða. Lykilorðið sem fylgir með kjörgögnum veitir aðgang að kosningunni sem fer fram hér. Atkvæðin eru ekki persónurekjanleg svo ekki er hægt að óska eftir nýju lykilorði, ef það kynni að glatast. Þeir félagsmenn sem ekki hafa aðgang að tölvu geta komið á skrifstofu félagsins og kosið þar.

Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki send kjörgögn þá getur viðkomandi kært sig inn á kjörskrá. Sá hinn sami þarf þá að hafa samband við skrifstofu Öldunnar. Í framhaldinu er málið sent til kjörstjórnar sem mun taka afstöðu til þess.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla kosningabæra félagsmenn til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni og greiða atkvæði um samninginn.


 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com