Skip to main content
Aldan

Kosning stendur yfir

By March 25, 2015No Comments

Atkvæðagreiðsla um verkfallsheimild stendur nú yfir og hvetjum við félagsmenn okkar til að taka þátt í henni. Þeir félagsmenn sem ekki hafa aðgang að tölvu geta að sjálfsögðu kosið á skrifstofu félagsins.

Rafræn atkvæðagreiðsla um verkfallsheimild stendur nú yfir og hvetjum við félagsmenn okkar til að taka þátt í henni. Félagsmenn á kjörskrá fengu send kjörgögn í pósti og í þeim er lykilorð sem notað er til að opna aðgang að kosningunni. Þeir félagsmenn sem ekki hafa aðgang að tölvu geta að sjálfsögðu kosið hér á skrifstofu félagsins.

Hver og einn ber ábyrgð á sínu atkvæði. Atkvæðin eru ekki persónurekjanleg þannig að það er ekki hægt að óska eftir nýju lykilorði, ef það kynni að glatast. Þar af leiðandi er mikilvægt að passa vel upp á lykilorðið.

Fólk er hvatt til að skoða gögnin vel og vandlega og hafa samband við skrifstofu Öldunnar eða skrifstofu SGS  ef einhverjar spurningar vakna. Þá er rétt að benda á vefsvæði SGS sem inniheldur mikið magn gagnlegra upplýsinga um verkfallsaðgerðirnar.

Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki send kjörgögn þá getur viðkomandi kært sig inn á kjörskrá. Sá hinn sami þarf þá að hafa samband við stéttarfélagið sitt. Í framhaldinu er málið sent til kjörstjórnar sem mun taka afstöðu til þess.

Aldan stéttarfélag og Starfsgreinasamband Ísland hvetja kosningabæra félagsmenn eindregið til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni og greiða atkvæði um verkfallsboðunina.
Nú er reynir á að íslenskt verkafólk standi saman öll sem eitt, berjist fyrir réttlátum kröfum og sendi Samtökum atvinnulífsins skýr skilaboð!

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com