Skip to main content
Aldan

Langar þig til Spánar?

By January 31, 2017No Comments

Minnum á íbúðina okkar í raðhúsahverfinu Altomar á Spáni en hverfið er rétt sunnan við Alicante borg. Akstur frá Alicante flugvelli til hverfisins tekur um 15 mínútur, en um 20 mín akstur er inn í miðborg Alicante. Auðvelt er að taka bílaleigubíl frá flugvelli og auðvelt að fylgja leiðbeiningum til áfangastaðar.

Íbúðina á Aldan í sameign með þremur öðrum stéttarfélögum og sér Verkalýðsfélag Snæfellinga um útleigu íbúðarinnar fyrir hönd allra félaganna.

Íbúðin er í lokuðum kjarna þar sem enginn kemst inn nema hafa lykil eða aðgangsheimilid.
Hún er vel búin öllum helstu þægindum, með loftkælingu og nettengingu og jafnframt er mjög gott aðgengi að íbúðinni. Gistipláss er fyrir 6 fullorðna í tveimur herbergjum og svefnsófa í stofu og einnig fylgir ferðabarnarúm. Raðhúsakjarninn er mjög snyrtilegur en fyrir miðju kjarnans er sameiginleg sundlaug með barnalaug sem aðeins íbúarnir hafa aðgang að. Við hliðina á sundlauginni er stigahús niður í bílastæðakjallarann en stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.

 Los Arenales er strandbær sem býður upp á alla nauðsynlega þjónustu með verslunum og veitingastöðum. Mjög stutt er frá íbúðakjarnanum niður á ströndina sem er í 5 – 10 mínútna göngufæri (athugið að þó þarf að ganga um frekar bratta brekku til að komast niður á ströndina).  Strandlengja Los Arenales er nánast samfelld sandfjara í átt til Alicante í norðri og til Santa Pola í suðri. Þar er mjög fjölbreytt þjónusta með úrvali veitingastaða, stórmarkaða og verslana. Um 10 mínútna akstur er til Sant Pola og um 5 mínútna akstur til Gran Alicant sem er þjónustukjarni sem ekið er í gegnum frá flugvellinum á leið til Altomar III. Um 40 mínútna akstur er frá Los Arenales til Torriveija.

Leiga
 Vlf. Snæfellinga í Grundafirði sér um útleigu íbúðarinnar. Gert er ráð fyrir að þriðjudagar verði skiptidagar í sumarleigu. Félagsmenn eru beðnir að snúa sér til Ólafar hjá Vlf. Snæfellsness með umsóknir og frekari upplýsingar í síma 588 9191 á opnunartíma virka daga frá kl.10:00 – 15:00 eða með tölvupósti á netfangið olof@verks.is .

• Sumarleiga frá 1. maí – 30. sept. Leigutími er 2 vikur,  verð kr. 80.000.
• Vetrarleiga frá 1. okt. – 30. apr. Vikuleiga er kr. 40.000 og stakur sólahringur er kr. 6000.
• Félögin hafa gert þjónustusamning um þrif og umsjón með fasteign. Greiða þarf því sérstakt skilagjald sem er 17.000 krónur og er það óháð leigutíma.
 Félögin hafa sett sameiginlegar umgengnisreglur sem gilda hjá öllum félögunum vegna leigu á Vinaminni. Umgengnisreglur munu fylgja öllum leigusamningum ásamt leiðbeiningum um staðsetningu.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com