Skip to main content
AldanStéttarfélag.isVMF

Laun hækka vegna hagvaxtarauka

By March 24, 2022No Comments

Forsendunefnd ASÍ og SA sem starfar samkvæmt kjarasamningum hefur hist og rætt hagvaxtarauka kjarasamninga. Líkt og greint var frá nýverið jókst landsframleiðsla á mann um 2,53% á síðasta ári. Þetta hefur þá þýðingu að hagvaxtarauki kjarasamninga hefur virkjast í fjórða þrepi.

Forsendunefnd ASÍ og SA hefur ákveðið að hagvaxtaraukinn komi til greiðslu 1. maí líkt og kveðið er á um í samningum. Launataxtar munu hækka um 10.500 kr. og almenn laun um 7.875 kr. frá 1. apríl og koma til greiðslu 1. maí.

Lífskjarasamningur var undirritaður í apríl 2019 þegar fyrirséð var að gjaldþrot lággjaldaflugfélagsins WOWair myndi hafa neikvæð áhrif á efnahagslíf. Samningurinn studdi við verðstöðugleika og skapaði forsendur fyrir lækkun vaxta. Greining Alþýðusambands Íslands á launahlutfalli hefur leitt í ljós að launahlutfall í hagkerfinu hefur verið stöðugt á samningstímabilinu.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com