Skip to main content
AldanStéttarfélag.isVMF

Launafólk eigi sæti við borðið við endurskoðun stofnanaumhverfis samkeppnis- og neytendmála!

By September 2, 2022No Comments
Asi Logo Wide
Alþýðusamband Íslands gagnrýnir að launafólk eigi ekki fulltrúa í starfshópi sem skipaður hefur verið af menningar- og viðskiptaráðherra og er ætlað að gera tillögur að úrbótum á stofnanaumhverfi samkeppnis- og neytendamála. Engin rök hníga að því að fulltrúi fyrirtækja eigi sæti í slíkum starfshópi en launafólk sé látið sitja hjá.Alþýðusamband Íslands fagnar að gera eigi betrumbætur á stofnanaumhverfi samkeppnis- og neytendamála á Íslandi með það að markmiði að styrkja samkeppni og tryggja stöðu neytenda. Samkeppni og neytendavernd skiptir sköpum fyrir íslenskt efnahagslíf og lífskjör fólks í landinu. Það eru því ríkir almannahagsmunir í húfi við að skapa stofnanaumhverfi sem styður við og ýtir undir virka og samkeppni og öfluga neytendavernd.

Launafólk og neytendur eru sitthvor hliðin á sama peningnum og kjarabætur felast ekki einungis í launahækkunum heldur í auknum kaupmætti launa sem virkt samkeppniseftirlit og neytendavernd stuðla að. Það skýtur því skökku við að fyrirtæki séu höfð með í ráðum við mótun tillagna sem varða almannahag en launafólk sé víðs fjarri. Nauðsynlegt og eðlilegt er að fulltrúi launafólks eða neytenda eigi sæti í starfshópi sem þessum til að tryggja að sjónarmið neytenda og launafólks verði höfð að leiðarljósi.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com