Skip to main content
AldanVMF

Mál vegna vinnuslyss barns fyrnist hjá lögreglu

By April 27, 2016No Comments

Brot á vinnuverndarlöggjöfinni virðast hafa lítið vægi hjá lögregluembættum landsins, jafnvel þó um vítaverð brot gegn barni sé að ræða. Það sýnir mál sem Vinnueftirlit ríkisins kærði til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í febrúar árið 2012 vegna fiskvinnslufyrirtækis í bænum.

Brot á vinnuverndarlöggjöfinni virðast hafa lítið vægi hjá lögregluembættum landsins, jafnvel þó um vítaverð brot gegn barni sé að ræða. Það sýnir mál sem Vinnueftirlit ríkisins kærði til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í febrúar árið 2012 vegna fiskvinnslufyrirtækis í bænum. Ástæða kærunnar var þríþætt brot fiskvinnslufyrirtækisins á 14 ára barni sem endaði með alvarlegu vinnuslysi þar sem barnið missti m.a. framan af fingri og hlaut varanlega örorku. Brotin voru eftirfarandi:

1.Barnið var látið vinna við hættulega vél sem er með öllu óheimilt að láta börn vinna við.
2.Barnið vann á 12 tíma vöktum.
3.Barnið var látið vinna á næturvöktum.

Með þessari háttsemi braut fiskvinnslufyrirtækið gegn lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð um vinnu barna og unglinga.

Slysið átti sér stað í júlí 2011 og var það rannsakað áfram árið 2012. Starfsmaðurinn sem sá um málið hjá lögregluembættinu í Vestamannaeyjum hætti hins vegar störfum árið 2012 og þar með stöðvaðist framgangur málsins hjá embættinu. Þar sem refsingar vegna brota á vinnuverndarlöggjöfinni varða eingöngu sektum þá fyrnast slík mál á aðeins tveimur árum. Af þessum sökum felldi lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum málið niður með bréfi dagsettu 9. mars 2016. Eftir situr einstaklingur sem varð fyrir vinnuslysi þar sem hann starfaði við aðstæður sem voru vítaverðar þegar barn á í hlut.

Þetta mál er því miður ekkert einsdæmi. Kærur Vinnueftirlitsins lenda gjarnan neðarlega á forgangslist lögreglu m.a. vegna þess hversu vægar refsingarnar eru. Til að koma í veg fyrir að þetta gerist þarf því að herða refsirammann og kveða á um að brot á vinnuverndarlöggjöfinni varði a.m.k. sektum eða 2 ára fangelsisvist, en við það lengist fyrningarfrestur slíkra mála í 5 ár.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com