Skip to main content
Stéttarfélag.is

Margar verslanir keppast um lægsta verðið á páskaeggjum

By February 27, 2024No Comments
Páskaegg 1
Minni munur er á verði á páskaeggjum milli verslana en á öðru sælgæti samkvæmt nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ. Til dæmis er verð á páskaeggjum að meðaltali 40% hærra í 10-11 en þar sem þau eru ódýrust á meðan verð á öðru sælgæti þar er að meðaltali tvöfalt dýrara en þar sem það er ódýrast. Lítill munur er á verði á páskaeggjum í fimm verslunum sem eru 0-7% frá lægsta verði. Oftast er um nokkurra krónu verðmun að ræða milli verslana þó að verðmunurinn sé meiri í krónum talið í sumum tilfellum.  
Minni verðmunur á páskaeggjum en á sælgæti
Páskaegg voru ódýrust í Bónus en þar á eftir kemur Kjörbúðin, Nettó og Krónan. Í þeim verslunum var verð oft lægst eða aðeins nokkrum krónum frá lægsta verði. Í Kjörbúðinni var mest 7% munur á lægsta verði, á Nóa páskaeggi nr. 3, en í Nettó skáru fjögur piparegg í kassa frá Góu sig úr; þau kostuðu 44% meira en í Bónus. Önnur verð í þessum fjórum verslunum voru að jafnaði um 0-7% frá lægsta verði. Fjarðarkaup var fimmta ódýrasta verslunin þegar kom að páskaeggjum. Þar kostuðu eggin að meðaltali 150 krónum meira en þar sem þau voru ódýrust og var Fjarðarkaup að meðaltali 7% frá lægsta verði.  

Verð á páskaeggjum var hæst í 10-11, að meðaltali 42% frá lægsta verði. Verð á páskaeggjum í Krambúðinni og Iceland var að meðaltali 33% frá lægsta verði og 22% í Hagkaup og Extra. Páskaeggjaúrvalið er mismikið eftir verslunum og eru páskaegg frá Nóa Síríus auðfundnust.

 

Allt að 33% hækkun frá 2022
Verð á páskaeggjum hefur hækkað um 3-22% frá því í fyrra, minnst í Kjörbúðinni en mest í Iceland. Ef litið er á hækkanir frá 2022 hefur verð á páskaeggjum hækkað mest í Hagkaupum, eða um þriðjung og minnst í Kjörbúðinni, um 12%. 

Hér fyrir neðan má sjá hækkanir á páskaeggjum frá 2023 og 2022: 

 

Hafa þarf í huga að í sumum tilfellum eru fáar vörur undir í verðsamanburði milli ára. Í Bónus hækkuðu páskaegg á bilinu 16-22%. Sömu páskaegg hækkuðu á bilinu 16-33% í Krónunni, 17-33% í Fjarðarkaupum og 34-46% í Hagkaup.
 

Hér má sjá hækkanirnar á hverju páskaeggi fyrir sig frá 2022:  


Hvað kostar kíló af kroppi?
Kílóverð á Nóa kroppi var rætt í Facebook-hópi verðlagseftirlitsins, “Vertu á verði”, í liðinni viku. Ýmsar stærðir og gerðir eru til af Nóa kroppi en í þeim verslunum sem þessi könnun náði til var lægsta kílóverðið að finna á 240 gr poka sem kaupa má í Bónus, 2.329 kr./kg. Vert er að nefna að 900 gr kropp-pokinn í Costco er þó talsvert ódýrari, eða 1.610 kr./kg. Costco er aðeins aðgengilegt handhöfum aðildarkorts. 

Verð páskaeggja 


Um könnunina
Könnunin var framkvæmd 21. febrúar 2024. Í samanburði á sælgætisverði voru 92 vörur. Aðeins er um beinan verðsamanburð að ræða, ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila. 

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ. 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com