Skip to main content
AldanVMF

Menntun og færni á vinnumarkaði

By November 1, 2017No Comments

Opin ráðstefna 9.nóvember

ASÍ, Vinnumálastofnun, SA og Hagstofa Íslands standa fyrir ráðstefnu um menntun og færni á vinnumarkaði. Á ráðstefnunni munu sérfræðingar í fremstu röð í færnispám frá Bretlandi, Svíþjóð og Írlandi fara yfir þær aðferðir sem beitt er í heimalöndum þeirra og annarsstaðar í Evrópu. Á Íslandi hefur ekki verið unnið markvist við gerð færnispár og eru Íslendingar þ.a.l. eftirbátar nágrannaþjóða í heildarstefnumótun m.t.t. þróunar færni, menntunar og vinnumarkaðar.

ASÍ, Vinnumálastofnun, SA og Hagstofa Íslands standa fyrir ráðstefnu um menntun og færni á vinnumarkaði. Á ráðstefnunni munu sérfræðingar í fremstu röð í færnispám frá Bretlandi, Svíþjóð og Írlandi fara yfir þær aðferðir sem beitt er í heimalöndum þeirra og annarsstaðar í Evrópu. Á Íslandi hefur ekki verið unnið markvist að gerð færnispár og eru Íslendingar þ.a.l. eftirbátar nágrannaþjóða í heildarstefnumótun m.t.t. þróunar færni, menntunar og vinnumarkaðar.

Ráðstefnan verður haldin á Hilton Hótel Reykjavík Nordica þann 9. nóvember kl. 8.10 – 10.30 og er öllum opin.

Skráning á ráðstefnuna er á vef Vinnumálastofnunar

Dagskrá:

08.10-08.30       Skráning og kaffi

08.30-08.40       Setning ráðstefnu og inngangsorð um þörf fyrir færnigreiningu vinnuafls og þróun
                           starfa
                           
Þorsteinn Víglundsson, velferðarráðherra

08.40-09.05       Færnigreining á vinnumarkaði: Staða mála og horfur fyrir Ísland

                          Skills supply and demand and skills mismatch: Situation and outlook in Iceland

                          Rob Wilson, Prófessor við Warwick háskóla í Bretlandi

09.05-09.25       Spá um færniþörf í Svíþjóð – notkun skráargagna

                          The case of Sweden: Projections of skills needs and the use of register data

                          Karin Grunewald, sérfræðingur á Hagstofu Svíþjóðar

09.30-09.50       Greining á færniþörf á Írlandi með samþættum aðferðum

                          The Systematic Identification of Skills Needs in Ireland – an Integrated Approach

                          John McGrath, hagfræðingur við Solas – Sí- og endurmenntunarstofnun Írlands

09.50-10.30       Pallborðsumræður 
                          Þátttakendur:
                          Ari Kristinn Jónsson, rektor HR
                          Hlíf Böðvarsdóttir, framkv.stjóri mannauðssviðs hjá Securitas
                          Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ
                          Rob Wilson, prófessor við Warwick háskóla
                          Þorsteinn Víglundsson, velferðarráðherra
                         Stjórnandi: Katrín Ólafsdóttir, lektor við HR

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com