Skip to main content
Stéttarfélag.is

Miðstjórn ASÍ styður félagsfólk BSRB

By June 8, 2023No Comments
Reykjavík, 7.6.2023Miðstjórn ASÍ lýsir yfir fullum stuðningi við yfirstandandi vinnustöðvun félagsfólks aðildarfélaga BSRB gagnvart sveitarfélögum landsins og beinir þeim tilmælum til félagsfólks aðildarsamtaka sinna að ganga hvorki beint né óbeint í störf félagsfólks aðildarfélaga BSRB meðan á vinnustöðvun stendur.

Meginreglan um að jöfn laun skuli greiða fyrir sambærileg störf er mikilvæg á íslenskum vinnumarkaði og þau stéttarfélög og einstaklingar sem telja á sig hallað eru hvattir áfram til að knýja fram leiðréttingu. Jafnframt er höfðað til ábyrgðar atvinnurekenda, og þá sérstaklega opinberra, að axla ábyrgð á sanngjörnum vinnumarkaði og mismuna ekki fólki á grundvelli stéttarfélagsaðildar.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com