Skip to main content
AldanVMF

Mikill verðmunur á heilsársdekkjum

By April 13, 2015No Comments

Mikill verðmunur er á ódýrasta heilsársdekkinu sem er í boði á dekkjaverkstæðum að því er fram kemur í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði hjá 19 verkstæðum þann 8. apríl sl. Munur á hæsta og lægsta verði var allt að 13.451 kr. eða 114%.

Mikill verðmunur er á ódýrasta heilsársdekkinu sem er í boði á dekkjaverkstæðum að því er fram kemur í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði  hjá 19 verkstæðum þann 8. apríl sl. Munur á hæsta og lægsta verði var allt að 13.451 kr. eða 114%.  Kannað var verð á 14´´,15´´ og 16´´ dekkjum sem eru dekk fyrir smábíla og meðalbíla. Á 14´´ og 15´´ heilsársdekkjum reyndust dekkin dýrust hjá MAX 1 en ódýrust hjá Dekkverki. Athugið að hér er bara verið að bera saman verð en ekki gæði dekkjanna.

Mestur verðmunur í könnuninni var á 16´´ dekki sem var ódýrast á 11.795 kr. hjá Dekkjahöllinni (Sonar) en dýrast á 25.246 kr. hjá Betra gripi (Firestar) sem er 13.451 kr. verðmunur eða 114%.

Minnstur verðmunur var á 15´´ dekki sem var ódýrast á 10.500 kr. Dekkverki (Goodride) en dýrast á 19.599 kr. hjá Max 1 (Nokian) sem er 9.099 kr. verðmunur eða 87%.

14´´ dekkið var ódýrast á 8.000 kr. hjá Dekkverki (Goodride) en dýrast á 15.498 kr. hjá Max 1 (Nokian) sem 7.498 kr. verðmunur eða 94%.

Sjá nánar niðurstöður í töflu á heimasíðu ASÍ.

Gæði dekkja skipta máli

Kannað var verð á ódýrasta heilsársdekkinu í eftirfarandi stærðum 175/65R14, 195/65R15 og 205/55R16 hjá 19 dekkjaverkstæðum víðsvegar um landið. Verðkönnunin nær einungis til þeirra verkstæða sem selja heilsársdekk og ekki er tekið tillit til gæða í samanburðinum. En gæði dekkja skipta miklu máli, þar sem þau eru stór öryggisþáttur við akstur og hafa mikil áhrif á m.a. bremsulengd og sparneytni.

Hjá sumum dekkjaverkstæðunum er afsláttur á umfelgun við kaup á heilum umgangi undir bílinn sem og ýmsir aðrir afslættir. Verðlagseftirlitið tekur fram að verð sem upp eru gefin eru á einu stöku dekki.

Eftirfarandi þjónustuaðilar vildu ekki taka þátt í verðkönnun verðlagseftirlitsins: N1 Fellsmúla,  Hjólbarðaverkstæði Heklu, Kletti, Borgardekk VDO, Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Barðinn, Hjólbarðaþjónusta  Magnúsar, Bílaáttan, Sólning, Hjólbarðaverkstæði Kaldasels, Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar, Toyota Selfossi, Smurstöðin Klettur og Bifreiðaverkstæði SB.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

 

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com