Skip to main content
VMF

Mikill verðmunur á jólamatvöru

By December 19, 2013No Comments

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á jólamatvöru í 9 matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri sl. mánudag. Kannað var verð á 89 matvörum sem eru mikið keyptar fyrir jólahátíðina.

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á jólamatvöru í 9 matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri sl. mánudag. Kannað var verð á 89 matvörum sem eru mikið keyptar fyrir jólahátíðina. Bónus var með lægsta verðið í 48 tilvikum af 89 og Krónan í 13. Samkaup-Úrval var með hæsta verðið í 45 tilvikum af 89 og Nóatún í 16.

Flestar vörurnar voru fáanlegar í verslun Fjarðarkaupa eða 84 af 89 og Iceland átti til 83. Minnst var úrvalið hjá Bónus en þar voru til 63 vörur af 89 og Nóatún átti til 70. Verðmerkingum var ábótavant hjá Víði Skeifunni, hjá Krónunni Granda og hjá Samkaupum–Úrvali Hafnarfirði.

Mestur verðmunur í könnuninni reyndist á Oskar andarkrafti sem var dýrastur á 534 kr. hjá Iceland en ódýrastur á 279 kr. hjá Bónus, verðmunurinn er 255 kr. eða 91%. Mikill verðmunur var einnig á Þykkvabæjar forsoðnum skyndikartöflum 2*500 gr. Voru þær dýrastar á 619 kr. hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrastar á 459 kr. hjá Bónus, verðmunurinn 160 kr. eða 35%.

Minnstur verðmunur reyndist vera á MS ¼ l af rjóma sem var dýrastur á 239 kr. hjá Víði en ódýrastur á 228 kr. hjá Nettó sem er 5% verðmunur. Það var einnig 5% verðmunur á Mjólku mangó/ástaraldinskyrtertu 600 gr. sem var dýrust á 1.154 kr. hjá Samkaupum–Úrvali en ódýrust á 1.098 kr. hjá Krónunni og Iceland. Benda má á að verðmunur á mjólkurvörum fór aldrei yfir 30% af þeim vörutegundum sem skoðaðar voru.

Af öðrum vörum má t.d. nefna að mikill verðmunur var á 135 gr. konfektkassa frá Nóa sem var ódýrastur á 798 kr. hjá Bónus en dýrastur á 1.089 kr. hjá Nóatúni sem gerir 36% verðmun. Einnig var mikill verðmunur á Ora jólasíld 630 gr. sem var ódýrust á 748 kr./st. hjá Hagkaupum en dýrust á 998 kr./st. hjá Iceland sem er 33% verðmunur. KEA úrbeinað hangilæri var ódýrast á 3.195 kr./kg. hjá Bónus en dýrast á 3.898 kr./kg. hjá Samkaupum–Úrvali sem er 22% verðmunur.

Sjá nánari upplýsingar í töflu á heimasíðu ASÍ.

Kannað var verð á 89 matvörum s.s. kjötvörum, mjólkurvörum, kökum, konfekti, drykkjarvörum, grænmeti og ávöxtum. Í könnuninni var skráð niður hilluverð vöru sem er það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um inni í búðinni að hann eigi að greiða fyrir vöruna. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/tilboðsverð af merktu verði við kassa var afsláttarverð skráð. Til að auðvelda verðsamanburð er skráð mælieiningaverð vöru, þar sem pakkastærðir eru mismunandi eftir verslunum. Tilboð eru víða í matvöruverslunum nú fyrir hátíðarnar og verðbreytingar tíðar. Neytendur ættu því að vera vel vakandi vilji þeir gera hagstæð innkaup á jólamatnum.

Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus Holtagörðum, Krónunni Granda, Nettó Akureyri, Iceland, Víði Skeifunni, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Nóatúni Háaleitisbraut,  Samkaupum – Úrvali Hafnarfirði og Hagkaupum Kringlunni.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com