Skip to main content
AldanVMF

Miklar hækkanir á stökum sundferðum

By January 14, 2016No Comments

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verðbreytingar á gjaldskrám sundstaða hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1.1.15. til 1.1.16. Þrettán þeirra hækkuðu gjaldið á stökum miða.

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verðbreytingar á gjaldskrám sundstaða hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1.1.15. til 1.1.16. Þrettán þeirra hækkuðu gjaldið á stökum miða.
Seltjarnarneskaupstaður og Fljótdalshérað halda sömu gjaldskrá og í fyrra. Mesta hækkunin er hjá Sveitarfélaginu Árborg eða um 50% og hjá Reykjavíkurborg um 38%. Árskort fullorðinna hefur einnig hækkað í verði hjá 9 sveitarfélögum af 15, hjá fjórum er sama verð og í fyrra. Hjá Vestmannaeyjarbæ og Kópavogsbæ hafa kortin lækkað í verði frá því í fyrra.

Gjaldskrá fullorðinna
Stakur sundmiði slagar upp í þúsund krónur hjá tveimur sveitarfélögum í könnuninni. Öll sveitarfélögin nema Seltjarnarneskaupstaður og Fljótdalshérað hafa hækkað gjaldið á stökum miða en þar kostar stakur miði 600 kr. Mesta hækkunin á milli ára er 50% hjá Sveitarfélaginu Árborg eða úr 600 kr. í 900 kr. sem er sama verð og hjá Reykjavíkurborg sem hækkar gjaldið úr 650 kr. í 900 kr. Hækkunin er 27% hjá Reykjanesbæ, 25% hjá Akureyrarkaupstað, 20% hjá Garðabæ, um 19% hjá Kópavogsbæ og um 17% hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. Sveitarfélögin Fjarðarbyggð, Mosfellsbær, Ísafjarðarbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Vestmannaeyjabær og Akraneskaupstaður hækka aðeins minna, eða um 3-9%.

10 miða kort hefur hækkað í verði hjá 11 sveitarfélögum af þeim 14 sem selja slík kort. Hæst er það á 4.900 kr. hjá Kópavogsbæ og lægst á 3.700 kr. hjá Mosfellsbæ sem er 32% verðmunur. Kortið hefur hækkað mest um 15% hjá Vestmannaeyjabæ.

Mikill verðmunur er á árskorti fullorðinna, eða allt að 116%. Hæst er það á 35.700 kr. hjá Fljótdalshéraði og lægst á 16.500 kr. hjá Ísafjarðabæ. Árskortið hækkaði hjá 9 sveitarfélögum af 15 um 3-5%. Mesta hækkunin er 5% hjá Fjarðarbyggð úr 33.000 kr. í 34.500 kr. eða um 1.500 kr. Reykjarvíkurborg, Akureyrarkaupstaður, Seltjarnarneskaupstaður og Fljótdalshérað selja kortin á sama verði og í fyrra. Tvö sveitarfélög hafa lækkað árskortin í  verði Vestmannaeyjabær um 29% úr 23.750 kr. í 16.900 kr. og Kópavogsbær um 9% eða úr 29.500 kr. í 26.900 kr. eða um 2.600 kr.

Börn á grunnskólaaldri
14 sveitarfélög af þeim 15 sem voru skoðuð eru með gjaldskrá fyrir börn, en stundum er frítt inn fyrir börn sem búsett eru í sveitarfélaginu. Fimm þeirra hafa hækkað verð á stakri ferð í sund á milli ára og eitt tók upp gjald. Hæsta gjaldið fyrir staka sundferð er 300 kr. hjá Ísafjarðabæ og Sveitarfélaginu Skagafirði en lægst er gjaldið á 120 kr. hjá Seltjarnarneskaupstað sem er 180 kr. verðmunur eða 150%. Mesta hækkun á stakri ferð er 20% hjá Sveitarfélaginu Skagafirði eða úr 250 kr. í 300 kr. Sveitarfélagið Árborg rukkar nú 150 kr. fyrir sundferðina sem var áður ókeypis. Það er aðeins hjá Sveitarfélaginu Akraneskaupstað þar sem ennþá er frítt fyrir börn að fara í sund.

10 miða kort fyrir börn er hæst á 2.350 kr. hjá Ísafjarðarbæ en lægst á 870 kr. hjá Hafnarfjarðarkaupstað. Mesta hækkun á 10 miða korti er 20% hjá Akureyrarkaupstað og um 9% hjá Garðabæ. Hjá Kópavogsbæ lækkaði verð á 10 miða kortinu um 8% úr 1.200 kr. í 1.100 kr. Vestmannaeyjabær hætti að selja 10 miða kort og kosta þess vegna 10 ferðir þá nú 1.900 kr. sem er töluverð hækkun frá því í fyrra.  

Hvað kostar fyrir 2 fullorðna og 2 börn að fara í sund?
Fjölskylda samansett af tveimur fullorðnum og tveimur börnum á gjaldskyldualdri ákveður að gera sér glaðan dag og fara í sund í öðru sveitarfélagi þurfa að borga umtalsverða upphæð til að koma fjölskyldunni ofan í laugina. Þegar skoðuð er saman gjaldskrá fullorðinna og barna má sjá hlutina í öðru samhengi. Það eru ekki allir sem hafa efni á því að kaupa kort hvort sem það sé 10, 20 eða 30 miða. Dýrast er að fara með hópinn í sund á 2.100 kr. í Sveitarfélaginu Árborg, á 2.080 kr. hjá Reykjavíkurborg svo á 2.000 kr. hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. Hagstæðast er að fara í sund með hópinn á Akranesi en þar kostar ekkert fyrir börn og er mjög hagstætt fyrir fullorðna að fara ofan í en þar kostar ferðin 856 kr. Verðmunurinn er 145% eða 1.244 kr. á dýrasta og ódýrasta gjaldinu.

Misjafnar reglur sveitarfélaganna
Börn undir grunnskólaaldri fá oft frítt í sund miðað við fæðingarár eða afmælisdag. Misjafnt er á milli sveitarfélaga hvenær barnagjald er tekið upp. Algengast er að greiða barnagjald fyrir börn frá 6 til 18 ára. En hjá sumum sveitarfélögum hefst gjaldtaka ekki fyrr en barn verður 10 ára. Einnig teljast börn í sumum sveitarfélögum fullorðin 16 ára. Flest sveitarfélög eru með frítt inn fyrir eldri borgara og öryrkja. Misjafnt er milli sveitarfélaga hvenær á bilinu 67-70 ára gjald fellur niður. Í sumum sveitarfélögum þar sem frítt er í sund fyrir börn, öryrkja og eldri borgara á það aðeins við íbúa viðkomandi sveitarfélags, aðkomumenn þurfa oft að greiða fullt gjald. Ýmis afsláttur er í boði hjá sveitarfélögum s.s. fjölskyldukort, paraafsláttur, magnkaup og ungmenna afsláttur.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com