Aldan stéttarfélag heldur námskeið dagana 22. og 23. nóvember nk. í vinnurétti, nánar tiltekið um lok ráðningarsambands.
Frestur til að skrá sig á námskeiðið rennur út kl. 16 mánudaginn 19.nóvember.
Athugið að frestur til að skrá sig á námskeiðið rennur út kl. 16 mánudaginn 19. nóvember.
Aldan stéttarfélag heldur námskeið dagana 22. og 23. nóvember nk. í vinnurétti, nánar tiltekið um lok ráðningarsambands.
Á námskeiðinu verður fjallað um lok ráðningarsambands og þær grundvallarreglur sem gilda við uppsögn.
Farið verður yfir ýmsa þætti s.s. breytingar, vanefndir eða brot á ráðningarsamningi og ólögmætar uppsagnir.
Námskeiðið er ætlað stjórn, trúnaðarráði, trúnaðarmönnum og öðrum áhugasömum félagsmönnum.
Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu stéttarfélaganna í síma 453 5433
til að fá frekari upplýsingar og til að skrá þig á námskeiðið.