Skip to main content
AldanVMF

Nauðungarvinna og þrælahald aldrei liðið á íslenskum vinnumarkaði

By December 4, 2019No Comments

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi dóm í máli sem þrotabú fyrirtækisins Menn í vinnu höfðaði vegna ummæla starfsmanns í Vinnustaðaeftirliti ASÍ, í fréttum Stöðvar 2 snemma á þessu ári. Eins og alkunna er þurfti ASÍ ítrekað að hafa afskipti af fyrirtækinu Menn í vinnu áður en það varð gjaldþrota.

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi dóm í máli sem þrotabú fyrirtækisins Menn í vinnu höfðaði vegna ummæla starfsmanns í Vinnustaðaeftirliti ASÍ, í fréttum Stöðvar 2 snemma á þessu ári.

Eins og alkunna er þurfti ASÍ ítrekað að hafa afskipti af fyrirtækinu Menn í vinnu áður en það varð gjaldþrota. Það var vegna slæms aðbúnaðar starfsfólks og brota á kjörum þess. Frá því fyrirtækið hóf störf hafði Vinnumálastofnun það einnig til rannsóknar og var í samstarfi við bæði Vinnueftirlit ríkisins og Ríkisskattstjóra.

Í frétt Stöðvar 2 þann 7.febrúar 2019 var opinberaður grunur um að erlendir starfsmenn fyrirtækisins Menn í vinnu hafi verið í nauðungarvinnu hjá  fyrirtækinu. Þeir væru svangir, peningalausir og hræddir, auk þess að búa við óásættanlegar og heilsuspillandi aðstæður á vegum fyrirtækisins. Samkvæmt dómi Héraðsdóms var stafsmanni ASÍ heimilt í þessu viðtali að vísa til þessara aðstæðna og felst í því fullnaðar viðurkenning á réttmæti þeirra ummæla. Hins vegar voru dæmd dauð og ómerk ummæli starfsmannsins um innlagnir á og úttektir af bankareikningum starfsmanna og að framkvæmdastjóri fyrirtækisins virtist hafa aðgang að bankareikningum starfsmanna sinna. Þótti dómara skorta gögn til að styðja við þessar fullyrðingar þrátt fyrir að starfsmenn hafi í frétt Stöðvar 2 sýnt viðstöddum gögn þessu til stuðnings. Heildarniðurstaða dómsins er því umdeilanleg þó ekki sé meira sagt.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun hvort dómnum verði áfrýjað.

Starfsfólk ASÍ mun hér eftir sem hingað til standa með félagsmönnum sínum og enduróma veruleika þeirra á vinnumarkaði. Til stendur að efla vinnustaðaeftirlit verkalýðshreyfingarinnar enn frekar á næstu mánuðum.

 „Félagar í ASÍ mega vera afskaplega stoltir af eftirlitsfólki hreyfingarinnar sem sinnir erfiðum störfum í baráttunni fyrir betri vinnumarkaði. Starfsmenn í vinnustaðaeftirliti ASÍ hafa unnið þrekvirki við að gæta hagsmuna vinnandi fólks og nýtur órofa stuðnings og fulls trausts í sínum störfum. Alþýðusambandið leitar stöðugt leiða til að efla eftirlit enda er full ástæða til að hafa sérstakar áhyggjur af fólki af erlendum uppruna sem kemur í gegnum starfsmannaleigur á íslenskan vinnumarkað. Nauðungavinna og þrælahald verður aldrei liðið á íslenskum vinnumarkaði“ segir Drífa Snædal forseti ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com