Skip to main content
Aldan

Norræn ráðstefna á Íslandi næsta vor

By June 18, 2014No Comments

Starfsgreinasamband Íslands átti frumkvæði að því að sækja um styrk til Norðurlandaráðs til að halda Norræna ráðstefnu um staðalmyndir og kynferðislega áreitni á hótelum, veitingastöðum og í ferðamannaiðnaðinum. Ráðstefnan verður haldin á Íslandi næsta vor.

Starfsgreinasamband Íslands átti frumkvæði að því að sækja um styrk til Norðurlandaráðs til að halda Norræna ráðstefnu um staðalmyndir og kynferðislega áreitni á hótelum, veitingastöðum og í ferðamannaiðnaðinum.
Samstarfsaðilar eru verkalýðsfélög á Norðurlöndunum auk Norrænu samtakanna NU-HRCT (Samtök starfsfólks á hótelum, kaffihúsum, skyndibitastöðum, veitingahúsum og í ferðaþjónustu á Norðurlöndum). Verkefnið hlaut styrk úr jafnréttissjóði Norðurlandaráðs og hefst undirbúningur á haustdögum og ráðstefnan sjálf verður haldin næsta vor á Íslandi.

Málefnið hefur verið töluvert í umræðunni á hinum Norðurlöndunum og sýna rannsóknir að allt að 70% kvenna sem starfa í ferðamannaiðnaðinum verða fyrir áreitni vegna kynferðis síns á vinnustaðnum. Engar rannsóknir eru til hér á landi svo vitað sé en fullt tilefni er til að hefja umræðuna.

Stefnt er að því að koma saman fagfólki, rannsakendum og verkalýðshreyfingunni á ráðstefnunni næsta vor, skiptast á upplýsingum og leiðum til úrbóta og móta stefnu í málaflokknum.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com