Skip to main content
AldanVMF

Ný verðkönnun á jólamat – Bónus oftast með lægsta verðið

By December 12, 2014No Comments

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á jólamatvöru í níu matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu sl. þriðjudag. Kannað var verð á 105 algengum vörum sem eru í boði fyrir jólahátíðina.

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á jólamatvöru í níu matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu sl. þriðjudag. Kannað var verð á 105 algengum vörum sem eru í boði fyrir jólahátíðina. Bónus Nýbýlavegi var með lægsta verðið í 77 tilvikum af 105, Krónan Granda í 10 tilvikum og Víðir Skeifunni 9 sinnum. Samkaup-Úrval Hafnarfirði var með hæsta verðið í 32 tilvikum af 105, Iceland Engihjalla í 27 tilvikum og Nóatúni í Nóatúni í 17 tilvikum. Oftast var á milli 25-50% verðmunur á hæsta og lægsta verði.

Mestur munur á hæsta og lægsta verði í könnuninni reyndist vera á grænmeti og ávöxtum. Mestur verðmunur var á ódýrustu fersku jarðaberjunum en þau voru dýrust á 3.495 kr/kg hjá Hagkaupum en ódýrust á 1.709 kr/kg hjá Krónunni, verðmunurinn er 1.786 kr. eða 105%. Einnig var mikill verðmunur á SFG forsoðnum parísarkartöflum 2*300 gr sem voru dýrastar á 498 kr. hjá Nettó Mjódd og Fjarðarkaupum en ódýrastar á 307 kr. hjá Hagkaupum verðmunurinn 191 kr. eða 62%.

Minnstur verðmunur í könnuninni reyndist vera á MS ¼ l. rjóma sem var dýrastur á 239 kr. hjá Víði en ódýrastur á 230 kr. hjá Bónus og Krónunni sem er 4% verðmunur. Lítill verðmunur var einnig á Stóra Dímon eða 7%, hann var dýrastur á 719 kr hjá Samkaupum–Úrvali en ódýrastur á 675 kr. hjá Bónus og Fjarðarkaupum.

Af þeim vörum sem til voru í öllum verslunum má t.d. nefna að mikill verðmunur var á 135 gr. konfektkassa frá Nóa sem var ódýrastur á 835 kr. hjá Bónus en dýrastur á 1.198 kr. hjá Samkaupum-Úrvali sem er 43% verðmunur. Einnig var mikill verðmunur á Kristjáns laufabrauði sem var ódýrast á 1.648 kr hjá Víði en dýrast á 2.239 kr hjá Nóatúni sem er 36% verðmunur. ½ l. malt í dós frá Ölgerðinni var ódýrust á 139 kr. hjá Bónus en dýrust á 168 kr. hjá Iceland sem er 21% verðmunur.

Misjafnt vöruúrval og léleg verðmerking

Flestar vörurnar sem skoðaðar voru í könnuninni voru fáanlegar í verslun Iceland eða í 99 tilvikum af 105 og Bónus og Víðir átti 89. Fæstar af vörunum voru fáanlegar hjá Nóatúni eða aðeins 72 af 105 og Samkaup-Úrval átti til 73. Verðmerkingum var ábótavant í flestum verslunum og oft vantaði hillumiða á kjötvöru. Oftast var vöntun á hillumiða hjá Víði eða 16 sinnum og bæði hjá Nóatúni og Krónunni vantaði hillumiða 12 sinnum. Skanni kemur aldrei í stað hillumiða.

Sjá nánari upplýsingar í töflu á heimasíðu ASÍ.

Kannað var verð á 105 matvörum s.s. kjötvörum, mjólkurvörum, kökum, konfekti, drykkjarvörum, grænmeti og ávöxtum. Í könnuninni var skráð niður hilluverð vöru sem það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um inni í búðinni að hann eigi að greiða fyrir vöruna. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/tilboðsverð af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð. Til að auðvelda verðsamanburð er skráð mælieiningaverð vöru, þar sem pakkastærðir eru mismunandi eftir verslunum. Tilboð eru víða í matvöruverslunum nú fyrir hátíðarnar og verðbreytingar tíðar. Neytendur ættu því að vera vel vakandi vilji þeir gera hagstæð innkaup á jólamatnum.

Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus Nýbýlavegi, Krónunni Granda, Nettó Mjódd, Iceland Engihjalla, Víði Skeifunni, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Nóatúni Nóatúni,  Samkaupum-Úrvali Hafnarfirði og Hagkaupum Holtagörðum.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com