Skip to main content
AldanVMF

Nýjar skólabækur hafa hækkað í verði hjá Forlaginu og Bókabúðinni IÐNÚ

By August 23, 2016No Comments

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á nýjum skólabókum á höfuðborgarsvæðinu þann 16. ágúst sl. Verð bókanna hækkaði mest hjá Forlaginu og í Bókabúðinni IÐNÚ milli ára en lækkaði á sama tíma hjá Pennanum-Eymundsson og A4. Taka skal fram að þennan dag var 25% afsláttur á nýjum skólabókum hjá Pennanum-Eymundsson og A4.

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á nýjum skólabókum á höfuðborgarsvæðinu þann 16. ágúst sl. Verð bókanna hækkaði mest hjá Forlaginu og í Bókabúðinni IÐNÚ milli ára en lækkaði á sama tíma hjá Pennanum-Eymundsson og A4. Taka skal fram að þennan dag var 25% afsláttur á nýjum skólabókum hjá Pennanum-Eymundsson og A4.  

Penninn-Eymundsson hefur lækkað hjá sér verð á milli mælinga á 14 titlum af 14 sem voru til í báðum mælingum og þá oftast um 25%. A4 lækkar verð á 13 titlum af 19 en hækkar verð á 6. Hjá Forlaginu Fiskislóð hefur verð bókanna hækkað á 9 titlum og bókabúðin IÐNÚ hefur hækkað verð á 10 titlum af 16, lækkað verð á 3 og er með sama verð og í fyrra á 3 titlum.

Sem dæmi um verðbreytingu á milli ára hefur bókin „Bókfærsla 1“ lækkað í verði um 25% hjá Pennanum-Eymundsson og um 23% hjá A4, en hækkað um 10% í verði hjá Bókabúðinni IÐNÚ og um 14% hjá Forlaginu.    

Þær verðbreytingar sem hér eru birtar miðast við breytingar á verði verslana milli verðkannana verðlagseftirlits ASÍ þann 18.8.15. og 16.8.16. Rétt er að árétta að tekin eru niður þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma og hafa tilboðsverð áhrif á samanburð. Penninn-Eymundsson og A4 voru með 25% afslátt af nýjum bókum þegar mæling fór fram 2016.

Bóksala stúdenta neitaði þátttöku.

Kannað verð var í eftirtöldum verslunum: Pennanum-Eymundsson, A4, Forlaginu Fiskislóð og Bókabúðinni IÐNÚ. Bóksala stúdenta neitaði þátttöku í könnuninni.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Nánari samanburð á skólabókum 2016 má sjá í töflu á heimasíðu ASÍ.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com