Skip to main content
Aldan

Nýr kjarasamningur við SA undirritaður

By April 4, 2019No Comments

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands (SGS) hefur undirritað nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins (SA) vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði.

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands (SGS)  hefur undirritað nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins (SA) vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði.

Helstu atriði nýs kjarasamnings:

  • Kjarasamningarnir gilda frá 1. apríl 2019 – 1. nóvember 2022
  • Krónutöluhækkanir – 17 þúsund kr. hækkun á öll mánaðarlaun 1. apríl 2019
  • Lægstu laun hækka mest – 30% hækkun á lægstu taxta
  • Aukið vinnustaðalýðræði með möguleika á verulegri styttingu vinnutímans (mestu breytingar í tæpa hálfa öld)
  • Eingreiðsla upp á 26 þúsund kr. sem kemur til útborgunar í byrjun maí 2019
  • Skilyrði sköpuð fyrir verulegri vaxtalækkun á samningstímanum
  • Skattbyrði hinna tekjulægstu lækkar um 10 þúsund kr. á mánuði

Almenn hækkun á mánaðarlaun fyrir fullt starf:

  • apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
  • apríl 2020 18.000 kr.
  • janúar 2021 15.750 kr.
  • janúar 2022 17.250 kr.

 Kauptaxtar hækka sérstaklega:

  • 1.apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
  • 1. apríl 2020 24.000 kr.
  • 1. janúar 2021 23.000 kr.
  • 1. janúar 2022 26.000 kr.

Á árunum 2020-2023 komi til framkvæmda launaauki að gefinni ákveðinnar þróunar á vergri landsframleiðslu á hvern íbúa.

Tenging við hagvöxt (hagvaxtarauki) tryggir launafólki hlutdeild í verðmætasköpuninni. Þetta ákvæði nýtist best þeim tekjulægri þar sem þessi hækkun fer af fullum þunga á taxtakaup og ¾ á önnur laun. Hagvaxtarauki getur hækkað taxtalaun um 3-13 þúsund á ári eftir því hvað verg landsframleiðsla á mann hækkar mikið á tímabilinu.
 2,5% hækkun á aðra liði kjarasamninganna eins og bónusa 2020-2022.

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf

  • apríl 2019: 317.000 kr. á mánuði
  • apríl 2020: 335.000 kr.
  • janúar 2021: 351.000 kr.
  • janúar 2022: 368.000 kr

Desemberuppót (var 89.000 kr. 2018)
2019: 92.000 kr.
2020: 94.000 kr.
2021: 96.000 kr.
2022: 98.000 kr.

Orlofsuppbót fyrir hvert orlofsár (var 48.000 kr. 2018)
Maí 2019: 50.000 kr.
Maí 2020: 51.000 kr.
Maí 2021: 52.000 kr.
Maí 2022: 53.000 kr.

 

Eingreiðslan kemur sem sérstakt álag á orlofsuppbót árið 2019 uppá 26.000 kr. sem greiðist eigi síðar en 2. maí 2019.

Forsendur kjarasamninganna eru eftirfarandi:
1.   Kaupmáttur launa hafi aukist á samningstímabilinu skv. launavísitölu Hagstofu Íslands.
2.   Vaxtir lækki verulega fram að endurskoðun samnings í september 2020 og haldist lágir út samningstímann.
3.   Stjórnvöld standi við gefin fyrirheit skv. yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð 
      kjarasamninganna.

Forsendur kjarasamninga verða metnar í september 2020 og september 2021. Forsendurnefnd verður skipuð þremur fulltrúum frá hvorum samningsaðila.

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com