Skip to main content

Starfsgreinasamband Íslands og Landssamband smábátaeigenda hafa undirritað nýjan kjarasamning vegna starfsmanna sem vinna við uppstokkun eða beitningu í landi. Samningurinn gildir jafnframt fyrir starfsmenn sem starfa við netavinnu.

Starfsgreinasamband Íslands og Landssamband smábátaeigenda hafa undirritað nýjan kjarasamning vegna starfsmanna sem vinna við uppstokkun eða beitningu í landi. Samningurinn gildir jafnframt fyrir starfsmenn sem starfa við netavinnu.Viðræður hafa staðið yfir frá því í sumar og eftir nokkuð strangar viðræður undanfarnar vikur náðu samningsaðilar loks saman síðastliðinn miðvikudag. Á fundi framkvæmdastjórnar SGS sem fór fram í gær var samningurinn tekinn til afgreiðslu þar sem hann var samþykktur samhljóða.

Aðalatriði samningsins eru:

  • hækkun kauptryggingar í rúmlega 300.000 kr. á samningstímanum, en samningurinn gildir  frá 1. maí 2015 – 31. desember 2018.
     
  • Kauptrygging og aðrir launaliðir taka hækkunum sem hér segir: 9,5% frá 1. maí 2015,
    8,0% 1.maí 2016, 4,5% 1. maí 2017 og 3,1% 1. maí 2018.
     
  • Desember- og orlofsuppbætur hækka í takt við það sem áður hafði verið samið um í aðalkjarasamningi SGS og SA, en í lok samningstímans verður desemberuppbót kr. 89.000 og orlofsuppbót kr.  48.000. miðað við fullt starf.

Hægt er lesa samninginn í heild sinni hér.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com