Skip to main content
AldanVMF

Nýr vettvangur neytenda til að veita fyrirtækjum aðhald

By May 13, 2019No Comments

Með nýjum kjarasamningum hefur launafólk axlað ábyrgð en það getur ekki, og á ekki, að gera það eitt. Fyrirtækin í landinu verða einnig að axla ábyrgð á stöðugleikanum í íslensku efnahagslífi. Það er ekki í boði að kostnaði vegna kjarsamninga verði velt út í verðlagið !

Með nýjum kjarasamningum hefur launafólk axlað ábyrgð en það getur ekki, og á ekki, að gera það eitt. Fyrirtækin í landinu verða einnig að axla ábyrgð á stöðugleikanum í íslensku efnahagslífi. Það er ekki í boði að kostnaði vegna kjarsamninga verði velt út í verðlagið.

Markmið verðlagseftirlits ASÍ er annars vegar að auka upplýsingastreymi til neytenda og efla þannig neytendavitund og hins vegar að veita fyrirtækjum og stofnunum aðhald.
Til að auka aðhald, virkja samtakamátt neytenda og skapa þeim vettvang hefur verið settur á fót facebook hópur þar sem almenningur getur sent inn ábendingar og upplýsingar um verðhækkanir og/eða látið vita af fyrirtækjum sem ekki hafa hækkað verð hjá sér og bjóða upp á gott verð. Þá geta fyrirtæki einnig látið vita ef þau hafa ekki hækkað verð og ætla sér ekki að gera það.

Við hvetjum fólk til að finna hópinn á facebook, ganga í hann og taka þannig þátt í að veita fyrirtækjum aðhald og tryggja að umsamdar launahækkanir skili sér í auknum kaupmætti.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com