Skip to main content

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á fiskafurðum í 27 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð, víðsvegar um landið mánudaginn 2. júní. Kannað var verð á 23 algengum tegundum fiskafurða. Í um helmingi tilvika var verðmunurinn á hæsta og lægsta verði á milli 50-100%. Melabúðin neitaði þátttöku í könnuninni.

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á fiskafurðum í 27 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð, víðsvegar um landið mánudaginn 2. júní. Kannað var verð á 23 algengum tegundum fiskafurða. Í um helmingi tilvika var verðmunurinn á hæsta og lægsta verði á milli 50-100%. Melabúðin neitaði þátttöku í könnuninni.

Lægsta verðið var oftast að finna hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi Hafnarfirði eða í 10 tilvikum af 23, Fiskbúð Siglufjarðar var næst oftast með lægsta verðið eða í fjórum tilvikum af 23 og Fiskbúðin Fiskás Hellu og Fiskbúðin Trönuhrauni í þremur tilvikum. Meiri dreifing var á hæsta verðinu á milli verslana, en hæsta verðið var hjá Hafberg Gnoðavogi í sjö tilvikum af 23, hjá Fiskikónginum Sogavegi í fimm tilvikum og hjá Fiskbúðinni Vegamótum Seltjarnanesi í fjórum tilvikum. Aðeins Fiskbúð Sjávarfangs Ísafirði átti til allar tegundirnar sem skoðaðar voru í könnuninni. Fæstar tegundirnar sem skoðaðar voru, voru til hjá Kjöt og fiskbúð Austurlands eða aðeins 6 af 23 og Samkaup-Úrval Hafnarfirði átti til sjö tegundir.

Munur á hæsta og lægsta verði í könnuninni var frá 25% upp í 123%. Mestur verðmunur í könnuninni var á stórlúðu í sneiðum sem var dýrust á 3.990 kr./kg. hjá Fiskikónginum, en ódýrust á 1.790 kr./kg. hjá Fiskbúðinni Fiskás Hellu en það gerir 2.200 kr. verðmun eða 123%.
 
Minnstur verðmunur var á roðflettu og beinlausu ýsuflaki sem var ódýrast á 1.590 kr./kg. hjá Fiskbúðinni Fiskás og Litlu Fiskbúðinni Hafnarfirði en dýrast á 1.990 kr./kg. hjá Hafberg, Fiskikónginum og Ship O Hoj Reykjanesbæ, en það gerir 400 kr. verðmun eða 25%.

Þá má nefna að ýsuofnréttur í kókos/karrý sósu var ódýrastur á 1.490 kr./kg. hjá Litlu fiskbúðinni en dýrastur á 2.190 kr./kg. hjá Hafberg sem er 47% verðmunur. Einnig má benda á að þorskflök roðflett og beinlaus voru ódýrust á 1.490 kr./kg. hjá Litlu Fiskbúðinni en dýrust á 1.999 kr./kg. hjá Hagkaupum Kringlunni sem gerir 34% verðmun.

Sjá nánar í töflu á heimasíðu ASÍ.

Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum: Fiskbúðinni Sundlaugavegi, Fiskbúðinni Hafberg Gnoðavogi, Þinni verslun Seljabraut, Fisk kompaní Akureyri, Fiskikónginum Sogavegi, Fiskikónginum Höfðabakka, Fiskbúðinni Hafrúnu Skipholti, Fiskbúðinni Fiskás Hellu, Samkaupum Úrval Hafnarfirði, Nettó Granda,  Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Fiskbúðin Sjávarhöllin Hólagarði, Fiskbúðinni Vík Reykjanesbæ, Ship O Hoj Reykjanesbæ, Litlu Fiskbúðinni Miðvangi, Kjöt og fiskbúð Austurlands, Hafinu fiskverslun Hlíðasmára, Nóatúni Hringbraut, Fiskbúð Hólmgeirs Þönglabakka, Gallerý fisk Nethyl, Fiskbúðinni Hófgerði, Fiskbúð Sjávarfangs Ísafirði, Fiskbúðinni Mos Mosfellsbæ, Fiskbúð Siglufjarðar, Fiskbúðinni Vegamótum og Hagkaupum Kringlunni. Melabúðin neitaði þátttöku í könnuninni.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila. 

Óheimilt er að vitna í þessa könnun í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com