Skip to main content

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í flestum verslunarkeðjum frá því í september 2012 þar til nú í byrjun október, nema hjá Nettó þar sem vörukarfan stendur nánast í stað milli mælinga.

Vörukarfan hækkaði um 16% á einu ári hjá Iceland

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í flestum verslunarkeðjum frá því í september 2012 (viku 37) þar til nú í byrjun október (viku 40), nema hjá Nettó þar sem vörukarfan stendur nánast í stað milli mælinga.

Mesta hækkunin á þessu tímabili er hjá Iceland eða um 16%,
um 10% hjá Krónunni og 9% hjá Víði.
Frá því í fyrra má sjá hækkanir í öllum vöruflokkum, mjólkurvörur og sætindi hafa þannig hækkað í öllum verslununum.

Mest hafa grænmeti og ávextir hækkað en þar má sjá allt að 25% hækkun.
 
Sjá má samanburð á hækkun á vörukörfu ASÍ á heimasíðu ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com