Skip to main content
Stéttarfélag.is

Orlofsuppbót

By May 18, 2022May 19th, 2022No Comments

Minnum félagsmenn Öldunnar og Verslunarmannafélags Skagafjarðar á rétt þeirra á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert.

Starfsmenn sveitarfélaga skulu hafa fengið persónuuppbót greidda 1. maí en starfsmenn hjá ríki og á almennum markaði (Aldan og Verslunarmannafélag Skagafjarðar) eiga að fá orlofsuppbót sína greidda 1.júní.

Full orlofsuppbót/persónuuppbót sem greiða skal á árinu 2022 er 53.000 kr. miðað við fullt starf. 

Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com