Stéttarfélag.is

Orlofsuppbót

By June 2, 2022No Comments
Minnum félagsmenn Öldunnar og Verslunarmannafélags Skagafjarðar á rétt þeirra á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert.

Starfsmenn sveitarfélaga skulu hafa fengið persónuuppbót greidda 1. maí en starfsmenn hjá ríki og á almennum markaði (Aldan og Verslunarmannafélag Skagafjarðar) eiga að hafa fengið orlofsuppbót sína greidda 1.júní.

Full orlofsuppbót/persónuuppbót sem greiða skal á árinu 2022 er 53.000 kr. miðað við fullt starf. 

Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.