Skip to main content
VMF

Örnámskeið fyrir þá sem hefur nýlega verið sagt upp störfum

By May 8, 2020No Comments

LÍV og VR bjóða upp á rafrænt örnámskeið fyrir þá sem hefur nýlega verið sagt upp störfum. Örnámskeiðið verður sent út rafrænt í beinni útsendingu þann 12. maí kl. 15:00 – 16:30.

LÍV og VR vilja styðja við félagsmenn sína og bjóða upp á rafrænt örnámskeið fyrir þá sem hefur nýlega verið sagt upp störfum af hálfu atvinnurekanda.

Örnámskeiðið verður sent út rafrænt í beinni útsendingu þann 12. maí kl. 15:00 – 16:30.

Í byrjun námskeiðsins fer Bryndís Guðnadóttir, forstöðumaður kjaramálasviðs VR, yfir réttarstöðu einstaklinga gagnvart starfslokum af þessu tagi og svarar algengustu spurningunum sem brenna á félagsmönnum við þessar aðstæður.
Því næst mun Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur, fjalla um hvernig við getum unnið með og breytt viðhorfum okkar og venjum til að ná fram okkar besta þegar á reynir. Lögð verður áhersla á gagnlegar aðferðir til að takast á við breytingar við krefjandi aðstæður.
Þegar þau hafa lokið erindum sínum svara þau fyrirspurnum. Hægt er að senda inn fyrirspurnir með því að fara inn á www.menti.com og slá inn kóðann 39508. Þar geta félagsmenn skrifað spurningar sínar, skoðað aðrar spurningar og einnig líkað við þær spurningar sem þeir myndu vilja sjá svarað.

Eins og áður sagði verður námskeiðið sent út rafrænt í beinni útsendingu þann 12. maí kl. 15:00 – 16:30.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com