Skip to main content

Páskaeggin sem verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á þann 24. mars sl. hafa lækkað töluvert í verði hjá Nettó, Bónus og Fjarðarkaupum frá sambærilegri könnun sem gerð var í fyrra. Á sama tímabili má sjá miklar hækkanir í verslunum Iceland, Víðis, Nóatúns og Samkaups-Úrvals.

Páskaeggin sem verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á þann 24. mars sl. hafa lækkað töluvert í verði hjá Nettó, Bónus og Fjarðarkaupum frá sambærilegri könnun sem gerð var í fyrra. Á sama tímabili má sjá miklar hækkanir í verslunum Iceland, Víðis, Nóatúns og Samkaups-Úrvals.
Af þeim verslunum sem hafa lækkað verð hefur Nettó lækkað verð í 12 tilvikum af 13, Fjarðarkaup í 12 tilvikum af 16, Krónan í 9 tilvikum af 14 og Bónus í 8 tilvikum af 10. Á sama tíma er verð eggjanna að hækka hjá Iceland í 15 tilvikum af 15, hjá Víði í 15 tilvikum af 16 og hjá Nóatúni í 10 tilvikum af 13. Aðeins í verslun Hagkaupa er jafnoft um hækkun og lækkun að ræða milli ára.

Miklar verðbreytingar á páskaeggjum 
Sem dæmi um páskaegg sem hefur lækkað oftar í verði en hækkað er Spádómseggið frá Góu en mesta lækkunin er hjá Fjarðarkaupum en þar kostaði stykkið 2.698 kr. í fyrra en kostar nú 2.444 kr. sem er 9% lækkun, hjá Hagkaupum hefur verðið lækkað um 8%, 7% hjá Víði, 6% hjá Nóatúni en minna hjá Bónus og Nettó. Hjá Iceland og Samkaupum-Úrval hefur Spádómseggið hækkað í verði, hjá Iceland um 9% og 12% hjá Samkaupum-Úrvali. Verðið er nánast óbreytt milli ára hjá Krónunni.
Sem dæmi um egg sem hefur oftar hækkað í verði en lækkað er páskaegg nr. 2 frá Nóa Síríus sem hefur hækkað um 16% hjá Samkaup-Úrvali og Víði, um 10% hjá Nóatúni, 8% hjá Iceland, 6% hjá Krónunni og 2% hjá Hagkaupum. Þetta sama egg lækkaði í verði um 3% hjá Bónus og um 6% hjá Fjarðarkaupum.

Samanburð milli verslana og tímabila má skoða á töfluformi hér.

Þær verðbreytingar sem hér eru birtar miða við breytingar á verði verslana milli verðkannana verðlagseftirlits ASÍ frá 31.3.2014 og 24.3.2015. Rétt er að árétta að mæld eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma í versluninni og geta tilboðsverð haft áhrif á verðbreytingar einstakra vara.
Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus, Krónunni, Nettó, Iceland, Víði,  Fjarðarkaupum, Samkaupum Úrval og Hagkaupum .
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com