Skip to main content
AldanStéttarfélag.isVMF

Pistill forseta ASÍ – húsnæði og lífeyrir

By January 31, 2022No Comments
Drífa Snædal Föstudagspistill

Verðbólgan fer áfram stigvaxandi og mælist nú 5,7% þrátt fyrir að einum helsta útsölumánuði ársins sé nú að ljúka. Að stórum hluta er verðbólgan drifin áfram af húsnæðisverði. Sú gjaldþrota stefna að hugsa húsnæðismarkaðinn út frá þörfum fjárfesta en ekki fyrir venjulegt fólk hefur alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir lífsgæði í landinu. Við þurfum að sannmælast um að fylgja heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um að eigi síðar en árið 2030 geti allir orðið sér úti um fullnægjandi og öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði. Þetta gerum við með því að styðjast við hið réttláta viðmið að almennt greiði fólk ekki meira en 25% af tekjum sínum í húsnæði. Við erum langt frá báðum þessum markmiðum og það er skilgetið afkvæmi þess hiks að koma lögum og reglum á húsnæðismarkaðinn. Það þarf ekki síðar en á vorþingi að innleiða lög um húsaleigu með leigubremsu. Það þarf að lögbinda sveitarfélög þannig að hluti lóðaúthlutunar fari í félagslega uppbygginu, þ.e. til samtaka sem starfa ekki í hagnaðarskyni hvort sem markmiðið er að leigja út eða selja eignir. Það þarf að breyta lánastarfsemi þannig að ábyrðin á síbreytilegum lánum falli ekki bara á lántaka heldur lánveitendur líka. Í gegnum djúpa kreppu sér ekki högg á vatni í hagnaðartölum bankanna, það eitt og sér segir sína sögu. Það þarf að endurreisa vaxtabótakerfið og það má fjármagna með bankaskatti. Húsnæðismálin eru stærsta öryggismálið og stærsta afkomumálið og það er ekki í boði fyrir stjórnendur ríkis eða sveitarfélaga að taka ekki á honum stóra sínum. Við erum löngu tilbúin í þessa vinnu og þetta voru skýr skilaboð í vikunni, bæði á fundi ASÍ með nýjum ráðherra húsnæðismála og á fundi Þjóðhagsráðs.

Annað stórt mál þessa dagana er hækkun lífeyrisaldurs. Vissulega er þrýstingur frá ákveðnum stéttum að hækka lífeyristökualdur. Margir opinberir starfsmenn vilja gjarnan vinna lengur en til sjötugs. Að hækka lífeyrisaldur á línuna er hins vegar algerlega vanhugsað út frá bæði stétt og kyni. Fólk sem vinnur erfiðisvinnu andlega og líkamlega endist ekki starfsævin eins og örorkutölur segja til um og er láglaunafólk og konur þar í meirihluta. Að hækka lífeyristökualdur þess hóps er ávísun á lífsgæða- og kjaraskerðingu og fjölgun öryrkja. Nær væri að innleiða sérstakan forgangslífeyri fyrir erfiðisvinnufólk til að brúa bilið frá því að starfskraftar þverra þangað til komið er að lífeyristökualdri. Önnur leið er að hækka frítekjumark gagnvart lífeyrissjóðstekjum til að létta undir með láglaunafólki sem tekur lífeyrin fyrr. Að hækka lífeyristökualdur án þess að taka tillit til stéttar eða kyns er forréttindablinda sem viðheldur fátækt og heilsubresti þeirra sem vinna erfiðustu störfin. Lífeyristökualdur á með réttu að semja um í kjarasamningum en ekki ákvarða með breytingum á reglugerðum á vegum fjármálaráðuneytisins. Það er eðlilegt að lífeyristökualdur verði undir í kjarasamningsviðræðum þessa árs.

Góða helgi,
Drífa

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com