Skip to main content
AldanStéttarfélag.isVMF

Pistill forseta ASÍ – Vinnan heldur áfram

By November 8, 2021No Comments

Afsögn Sólveigar Önnu Jónsdóttur úr embætti formanns Eflingar kom mér eins og flestum öðrum á óvart. Sólveig Anna kom með krafti inn í verkalýðshreyfinguna. Hún var og er ötul baráttukona fyrir lægst launuðu hópa samfélagsins og átti ríkan þátt í að setja þeirra málefni á dagskrá síðustu kjarasamninga. Þeir samningar voru góðir fyrir samfélagið og sama má segja um kjarasamninga sem Efling gerði við Reykjavíkurborg og fleiri og kostuðu umtalsverð átök. Undir forystu Sólveigar Önnu gerði Efling einnig skurk í málefnum erlendra félagsmanna, sem var löngu tímabært. Í þessum verkefnum hefur Efling vaxið og mætt betur þörfum síns félagsfólks. Þegar miðstjórn ASÍ afgreiddi afsögn Sólveigar Önnu sem 2. varaforseta Alþýðusambandsins og fulltrúa í miðstjórn var henni þökkuð samfylgdin og barátta hennar og störf í þágu hreyfingarinnar.

Það er ekkert nýtt að gusti innan verkalýðshreyfingarinnar. Saga Alþýðusambands Íslands og saga einstakra stéttarfélaga er uppfull af átökum, enda samanstendur hreyfingin af fólki sem vill hafa áhrif á sitt samfélag, fólki sem vill sjá breytingar til hins betra. En sagan er líka full af samtakamætti og slagkrafti sem hefur undirbyggt þau lífsgæði sem einkenna samfélagið á Íslandi.

Viðburðir vikunnar hafa varpað ljósi á stöðu starfsfólks innan stéttarfélaga, stöðu trúnaðarmanna og félagslega kjörinna fulltrúa. Um það vil ég segja: það eiga allir skilið að líða vel í starfi, og á það jafnt við um starfsfólk, trúnaðarmenn eða félagslega kjörið fólk. Starfsfólk stéttarfélaganna er í framlínu frá degi til dags í þjónustu við félagsmenn. Það mæðir oft mikið á því fólki og það á heiður og virðingu skilda fyrir að sinna sínum störfum. Enda velst þar iðulega til starfa fólk sem trúir á mikilvægi vinnunnar, nauðsyn þess að tryggja heilbrigt, öruggt og réttlátt starfsumhverfi og hefur vilja til að vernda og styrkja stöðu launafólks á vinnumarkaði. Í flestum stéttarfélögum, líkt og á öðrum vinnustöðum, eru starfandi trúnaðarmenn starfsfólks. Trúnaðarmönnum ber að tala máli starfsfólks inni á vinnustað en það getur verið afar erfið staða eins og trúnaðarmenn um allt land vita mæta vel. Það er engin tilviljun að trúnaðarmenn njóta lagalegrar verndar enda geta þeir lent á milli steins og sleggju þegar erfið mál koma upp á vinnustöðum.

Þótt skerist stundum í odda innan stéttarfélaga og innan verkalýðshreyfingarinnar þá skiptir máli að halda athyglinni á starfinu sjálfu. Félagsmenn geti leitað til síns félags eftir þjónustu og baráttan fyrir þeirra hagsmunum haldi áfram hvað sem öðru líður. Kraftur verkalýðshreyfingarinnar er í gegnum samstöðu og þess vegna er það grundvallaratriði að traust og gagnkvæm virðing sé ríkjandi.

Okkar bíða risavaxin verkefni, kjarasamningar á næsta ári auk þeirra fjölmörgu atriða sem þarf að þrýsta á stjórnvöld að efna, ekki síst í húsnæðismálum til að bæta lífsgæði vinnandi fólks og almennings alls. Verkefnið núna er að horfa fram á veginn og vinna að þessum aðkallandi verkefnum.

Góða helgi,
Drífa

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com