Skip to main content
AldanStéttarfélag.isVMF

Pistill forseta ASÍ – Vinnumarkaðurinn og kosningarnar

By September 24, 2021September 27th, 2021No Comments

Sú undarlega staða gæti komið upp að samningar um ríkisstjórnarmyndun og kjarasamningsviðræður féllu saman að þessu sinni en forsendunefnd ASÍ og SA hafa komist að þeirri niðurstöðu að forsendur kjarasamninga hafi ekki staðist. Þrjár forsendur voru til grundvallar lífskjarasamningunum, lækkun vaxta, aukinn kaupmáttur og að stjórnvöld myndu standa við sínar yfirlýsingar. Nú er ljóst að stjórnvöld hafa ekki staðið við yfirlýsingar í tengslum við kjarasamninga og því hafa forsendur ekki staðist. Nú tekur við það ferli að samninganefndir ASÍ og SA tala saman en hvor aðili um sig getur sagt upp samningunum fyrir kl. 16 þann 30. september. Það er vilji hjá verkalýðshreyfingunni að samningarnir standi þrátt fyrir forsendubrest enda búið að semja um kauphækkanir á næsta ári og samningarnir eru á sínu síðasta ári – renna út í nóvember 2022. Vinnumarkaðurinn er að rétta úr kútnum og þarf síst á átökum og óvissu að halda. Í kjarasamningunum sem voru undirritaðir vorið 2019 skipti aðkoma ríkisstjórnarinnar sköpum. Á spýtunni héngu skattabreytingar, barnabætur, fæðingarorlofið, húsnæðismál, umgjörð vinnumarkaðarins, vextir og lánamál auk lífeyrismála svo eitthvað sé nefnt. Það er rík hefð fyrir því að fara í þríhliða viðræður enda skiptir öllu máli fyrir daglegt líf launafólks hvaða ákvarðanir stjórnvöld taka á hverjum tíma. Kjarabætur geta komið í ýmsum myndum og þegar reynir á skiptir öllu að við séum með traust heilbrigðiskerfi og almannatryggingakerfi.
Það er því engin tilviljun að ASÍ, eins og önnur almannasamtök, hafi beitt sér í kosningabaráttunni og látið flokkana standa til svars um þau mál sem félagar í ASÍ vilja setja á oddinn; heilbrigðismál, húsnæðismál, skattamál og afkomuöryggi.

Það bíða nýrrar ríkisstjórnar stór verkefni í sókn okkar til bættra lífskjara. Þar má finna leiðbeiningar í þeim fjölmörgu skýrslum sem ASÍ og Varða – rannsóknarmiðstöð vinnumarkaðarins hafa unnið undanfarið um hvar skóinn kreppir og hvernig má fjármagna aukna velferð. Við erum á krossgötum eftir efnahagslægð og nú kemur í ljós hverjir vilja fara leið sölu ríkiseigna, útvistunar og skertrar þjónustu til að greiða upp skuldir og hverjir vilja fara þá leið að vaxa út úr kreppunni vitandi það að lífskjör almennings knýja áfram hjól atvinnulífsins. Án kaupmáttar hins almenna borgara eru fáir til að halda uppi atvinnurekstri, sérstaklega lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Enn á ný er húsnæðismarkaður orðin rót óstöðugleika í hagkerfinu. Peningastefnan hefur þrýst á húsnæðisverð og leiguverð fer hækkandi á ný. Þessi þróun er nú meginorsök verðbólgunnar. Engu að síður heyrist kunnuglegur söngur um að kosningaloforð og nauðsynleg umbótamál muni leiða til vaxtahækkana. Það hlýtur að vera hagur allra, ekki bara launafólks heldur líka atvinnurekenda, að fólk geti lifað með reisn, haft aðgang að kerfi sem bætir heilsuna og búið í góðu húsnæði á viðráðanlegum kjörum. Við getum ekki unað því að fólk verði fátækt og heilsubresti að bráð í ómanneskjulegu samfélagi.

Alþýðusamband Íslands er tilbúið til að leggja þeirri ríkisstjórn lið sem setur atvinnuöryggi, afkomuöryggi og húsnæðisöryggi í forgang, það er líka lykillinn að friði á vinnumarkaði næstu árin.
Góða helgi,
Drífa

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com