Skip to main content
AldanStéttarfélag.isVMF

Pistill forseta – Sóttvarnir

By January 14, 2022No Comments

Tíu manna samkomutakmarkanir taka gildi á miðnætti og hefur það áhrif á okkur flest. Nú eru að verða tvö ár af faraldrinum og langtímaafleiðingar farnar að segja til sín. Fjöldi fólks hefur misst vinnu tímabundið eða jafnvel til lengri tíma. Margir hafa gengið á lífeyrissparnað sinn og eigið fé til að brúa hið fjárhagslega bil eða jafnvel þurft að steypa sér í skuldir. Fólk sem vinnur við að liðsinna viðkvæmum einstaklingum hefur þurft að lifa við harðari sóttvarnir til að stofna ekki skjólstæðingum sínum í hættu. Fólk í framlínunni hefur verið undir ómanneskjulegu álagi í allt of langan tíma í velferðarkerfi sem víða er undirmannað. Skólar á öllum skólastigum hafa ítrekað breytt starfsemi sinni og innleitt nýja kennsluhætti til að geta haldið menntun barna gangandi í gegnum heimsfaraldur. Vinnandi fólk hefur komið til móts við atvinnurekendur og vinnustaði með sóttvörnum, breytingu á vinnutilhögun, skipulagi orlofs og jafnvel grundvallarbreytingu á störfum. Við höfum almennt öll lagt okkar af mörkum til að samfélagið og atvinnulífið geti gengið áfram.

Ein mikilvægasta ákvörðunin sem tekin hefur verið er að greiða laun í sóttkví þannig að það sé ekki fjárhagsleg spurning fyrir atvinnurekendur eða launafólk hvort fylgja eigi sóttvarnarlögum. Að auki var boðið uppá hlutabótaleið þannig að ráðningasamband myndi haldast þótt nauðsynlegt væri að draga tímabundið saman seglin. Flestar þessara aðgerða hafa tekist vel en það er ekki þar með sagt að fyrirtæki eigi heimtingu á ríkisstuðningi við þessar aðstæður. Fjöldi fyrirtækja hefur staðið ástandið vel af sér og eru jafnvel stöndugri í dag en fyrir tveimur árum síðan. Það er því ekki sanngjarnt að fyrirtæki fái skilyrðislausan stuðning úr okkar sameiginlegu sjóðum á þessum tímum og að innleiddar séu almennar aðgerðir sem gagnast jafnt þeim sem maka krókinn og hinum sem komast varla lífs af. Það er líka lágmark að þau fyrirtæki sem njóta stuðnings undirgangist skilyrði um að greiða ekki arð, eiga ekki aflandsfélög, kaupa ekki eigin hlutabréf eða stunda aðrar leiðir til að tryggja gróða fyrir hina fáu. Borið hefur á því að fyrirtæki óska eftir fólki í vinnu aftur þó það sé í sóttkví. Sóttvarnaryfirvöld hafa veitt undanþágur frá sóttkví að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og nú nýverið var reglum um  sóttkví fyrir þríbólusetta einstaklinga breytt.

ASÍ hefur borist fjöldi fyrirspurna vegna framferði atvinnurekenda gagnvart starfsfólki sínu í tengslum við sóttkví og bólusetningar. Því skal eftirfarandi áréttað: Atvinnurekendur eiga ekki heimtingu á upplýsingum um heilsufar eða bólusetningar starfsfólks nema í undantekningartilvikum þar sem starfsfólk vinnur til dæmis með viðkvæmum hópum. Atvinnurekendur geta ekki krafið fólk um að undirgangast bólusetningar eða farið fram á skýringar á því hvers vegna fólk er skikkað í sóttkví af sóttvarnaryfirvöldum. Ef launamanneskjan er í sóttkví, þá er hún í sóttkví og það ber atvinnurekanda að virða. Allt valdboð eða skipanir verða einungis til þess að samstaða um sóttvarnir brestur. Við höfum hingað til staðið saman um sóttvarnir og aðrar aðgerðir til að halda samfélaginu gangandi á erfiðum tímum. Höldum því áfram.

Förum vel með okkur!

Góða helgi,
Drífa

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com