Skip to main content
Aldan

Ráðstefna um áhrif hlutastarfa og vaktavinnu

By January 12, 2017No Comments

Bein útsending í dag!

Starfsgreinasamband Íslands boðar til ráðstefnu í dag, 12. janúar, um lífsgæði og kjör starfsfólks í hlutastörfum og vaktavinnu. Sjónvarpað verður beint frá ráðstefnunni í gegnum facebook-síðu Starfsgreinasambandsins og eru félagar um allt land hvattir til að nýta sér tæknina.

Starfsgreinasamband Íslands boðar til ráðstefnu í dag, 12. janúar,  um lífsgæði og kjör starfsfólks í hlutastörfum og vaktavinnu. Sjónvarpað verður beint frá ráðstefnunni í gegnum facebook-síðu Starfsgreinasambandsins og eru félagar um allt land hvattir til að nýta sér tæknina.

Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvort starfsfólk velur sér sjálft þessi störf og hvaða áhrif störf sem eru ekki með hefðbundinn vinnutíma hafa á lífsgæði fólks. Hvað getur starfsfólk gert til að draga úr streitu í vaktavinnu? Getur fólk valið að vinna fulla vinnu eða eru hlutastörf dulbúin kjaraskerðing? Hvernig eru kynjahlutföll meðal starfsfólks með óhefðbundinn vinnutíma? Hefur óhefðbundinn vinnutími áhrif á heilsu starfsfólks og þá hvernig?
Þessum spurningum og fleiri verður velt upp á ráðstefnunni en dagskráin er blanda af reynslusögum starfsfólks, kynning á niðurstöðum nýlegra rannsókna og umfjöllun sérfræðinga um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum óhefðbundins vinnutíma.
Ráðstefnan fer fram á Hotel Natura og hefst hún klukkan 12:30 og stendur til 16:30. Nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna ef mætt er á staðinn.

Skráning

Dagskrá
 12:30   Setning.
 12:40   Innlegg frá félagsmanni.
 12:50   Kynning á niðurstöðum norrænnar rannsóknar um hlutastörf, tíðni þeirra og ástæður.
             Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði hjá Háskóla Íslands.
 13:35   Tímabundin störf og heilsufar á Íslandi: Niðurstöður úr heilsukönnun Hagstofu Íslands.
             Kolbeinn Hólmar Stefánsson, sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands.
 14:20   Kaffihlé.
 14:40   Innlegg frá félagsmanni.
 14:50   Nýjustu rannsóknir á áhrifum streitu á heilsu og hver eru úrræðin!
             Ingibjörg Jónsdóttir, prófessor og yfirmaður Streiturannsóknastofnunar Gautaborgar.
 15:35   Leiðir til að líða betur í vaktavinnu.
             Lára G. Sigurðardóttir læknir og fræðslustjóri hjá Krabbameinsfélagi Íslands.
 16:20   Samantekt á niðurstöðum og ráðstefnuslit.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com