Skip to main content
Aldan

Rafræn kosning hafin um kjarasamning sjómanna

By November 23, 2016No Comments

Þann 14. nóvember var undirritaður kjarasamningur milli SFS og aðildarfélaga Sjómannasambands Íslanda, að Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur undanskildu og er nú kosning hafin um kjarasamninginn.

Þann 14. nóvember var undirritaður kjarasamningur milli SFS og aðildarfélaga Sjómannasambands Íslanda, að Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur undanskildu. Auk þess fór Sjómannasamband Íslands ekki með samningsumboð fyrir Verkalýðsfélag Vestfirðinga. Hægt er að nálgast samninginn og kynningarefni um hann hér að neðan. Þó svo að vísað sé til Verkalýðsfélags Vestfirðinga í samningnum eru þeir ekki aðilar að þessum samningi, heldur undirrita þeir sérstakan samning sem efnislega er samhljóma þessum samningi.
Jafnframt er hér fyrir neðan samningur milli SSÍ og SFS frá 18. nóvember 2016 sem fellir brott 12. greinina um slysa- og veikindabætur skipverja, en ákvæði um þetta er sett í bókun. Ástæðan fyrir niðurfellingu greinarinnar er sú umræða sem verið hefur um þetta mál undanfarna daga
 
Hér má nálgast samninginn  frá 14. nóvember 2016 á pdf formi.
Hér má nálgast samninginn frá 18. nóvember 2016 vegna 12. greinarinnar.
Hér má nálgast kynningarefni um samninginn.
 
Nú er kosning um kjarasamninginn hafinn. Fyrir þau félög innan SSÍ sem að samningnum standa er hægt að kjósa hér fyrir neðan. Að samningnum standa öll aðildarfélög SSÍ, að Verkalýðsfélagi Vestfirðinga og Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur undanskildum. Kosning um þeirra samning fer fram sér fyrir hvort félag.

Kosning stendur yfir til kl. 12:00 þann 14.desember. 
Ýttu hér til að kjósa um samninginn.
 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com