Skip to main content

Samninganefnd ASÍ hefur unnið að því að leggja grunn að aðfarasamningi við SA en nú er kominn upp djúpstæður ágreiningur við SA um launalið væntanlegs samnings svo samninganefnd ASÍ telur forsendur brostnar fyrir þeirri leið sem átti að varða.

Samninganefnd ASÍ hefur á undanförnum vikum unnið að því að leggja grunn að aðfarasamningi við Samtök atvinnulífsins, þar sem þess yrði freistað að ná auknum kaupmætti, tryggja stöðugleika í efnahagsmálum og lágri verðbólgu. Ágætur árangur hefur náðst um umgjörð slíks samnins.

Nú er hins vegar kominn í ljós djúpstæður ágreiningur við SA um launalið væntanlegs samnings, sérstaklega það sem snýr að hækkun lægstu launa. Svo langt er á milli aðila að samninganefnd ASÍ telur forsendur brostnar fyrir þeirri leið sem átti að varða. SA hafnar þeirri kröfu ASÍ að hækka lægstu laun um ákveðna krónutölu. Því hefur samninganefnd ASÍ tilkynnt SA að viðræðum á þessum grunni sé hætt.

Framhald viðræðna um gerð nýrra kjarasamninga er í höndum aðildarsamtaka ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com