Skip to main content
Aldan

Samið við sveitarfélögin

By July 2, 2014No Comments

Starfsgreinasamband Íslands undirritaði samninga við Samband Íslenskra sveitarfélaga í gærkveldi fyrir hönd ellefu aðildarfélaga sinna. Samningurinn gildir frá 1. maí 2014 til 30. apríl 2015 og koma launahækkanir í tveimur skrefum þannig að fyrsta hækkun gildir frá 1. maí 2014 og síðan verða aftur breytingar á launatöflu um áramótin 2014/2015.

Starfsgreinasamband Íslands undirritaði samninga við Samband Íslenskra sveitarfélaga í gærkveldi fyrir hönd ellefu aðildarfélaga sinna (AFL starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands og Verkalýðsfélag Vesfirðinga).

Samningurinn gildir frá 1. maí 2014 til 30. apríl 2015 og koma launahækkanir í tveimur skrefum þannig að fyrsta hækkun gildir frá 1. maí 2014 og síðan verða aftur breytingar á launatöflu um áramótin 2014/2015.
Breytingar voru gerðar á tengitöflu og launatöflu þannig að misjafnt er hvernig hækkanirnar koma út hjá einstaka starfsfólki en krónutöluhækkanirnar á tímabilinu eru frá tæplega 10.000 krónum upp í 28.000 krónur á mánuði.
Til að dreifa hækkuninni með sem sanngjörnustum hætti var starfsmatinu breytt þannig að færri stig þarf nú til að hækka um launaflokk. Kynningarefni með dæmum verður sent von bráðar á félagsmenn. Desemberuppbót hækkar um 15,9%, og verður á árinu 93.500 krónur og framlag sveitarfélaganna í starfsmenntunarsjóði hækkar einnig um 0,1% eins og í öðrum kjarasamningum sem gerðir hafa verið á árinu.

Ákveðið var að halda sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu og skal henni lokið fyrir 22. júlí næstkomandi. Félagar fá sent heim kynningaefni og lykilorð vegna hennar.

Á heimasíðu Starfsgreinasambands Íslands má finna samninga og launatöflur.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com