Skip to main content
AldanVMF

Samkeppni um nafn

By November 27, 2019No Comments

Skila þarf tillögum fyrir 16.desember

Stofnuð hefur verið rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum til að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félags- og efnahagsmála. ASÍ og BSRB óska eftir tillögum um nafn á stofnunina en skila þarf tillögum fyrir 16. desember 2019.

Alþýðusamband Íslands og BRSB hafa stofnað rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum til að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félags- og efnahagsmála. Stofnuninni er ætlað að dýpka umræðuna um kaup og kjör og koma þannig með aukið fóður inn í baráttu launafólks fyrir bættri afkomu og betri lífsskilyrðum. Hún verður þverfagleg og sjálfstæð í sínum störfum.

ASÍ og BSRB óska eftir tillögum um nafn á stofnunina. Nafnið þarf að vera þjált í notkun og gefa stofnuninni jákvæða ímynd.
Tillögum um nafn þarf að skila inn fyrir 16. desember 2019 á netfangið asi@asi.is merkt „Nafnasamkeppni 2019“. Nafn, símanúmer og netfang höfundar þarf að fylgja með. Frjálst er að senda inn fleiri en eina tillögu.

Verðlaun að upphæð kr. 50.000 verða veitt fyrir bestu tillöguna. Ef fleiri en einn leggja til vinningsnafnið verður vinningshafinn dreginn út.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com