Skip to main content

Nýverið voru gerðar breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar, sem fela það m.a. í sér að þeir sem eru 60 ára eða eldri og hafa fengið skertar greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði á tímabilinu 1. mars 2009 til dagsins í dag, vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóði, geta átt rétt á endurgreiðslu úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem nemur fjárhæð skerðingarinnar. Þetta á hins vegar ekki við um þá sem eru yngri en 60 ára þar sem greiðslur úr séreignarlífeyrissjóðum skerða ekki greiðslur til þeirra úr Atvinnuleysistryggingasjóði.

Þeir sem eru 60 ára eða eldri og telja að greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði til þeirra hafi verið skertar vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóði á framangreindu tímabili er bent á að sækja um endurútreikning á greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Hægt er að nálgast umsóknareyðublað hér á síðunni. Nauðsynlegt er að láta kvittun eða greiðsluyfirlit vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóði fylgja með umsókn um endurútreikning. 

Þarna getur verið um umtalsverða hagsmuni að ræða fyrir viðkomandi einstaklinga. Umsóknarfrestur er til 1. september nk.

Allar frekari upplýsingar um málið og framkvæmdina má fá á vef Vinnumálastofnunar: http://www.vinnumalastofnun.is/frettir/nr/2163/  
Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com