Skip to main content
Aldan

SGS vísar deilu til Félagsdóms

By August 8, 2019No Comments

Formannafundur SGS samþykkir að sambandið muni höfða mál fyrir Félagsdómi þar sem látið verður reyna á túlkun samningsákvæðisins frá 2009 um skyldu sveitarfélaga til þess að ganga til kjarasamningsviðræðna um jöfnun lífeyrisréttinda.

Starfsgreinasamband Íslands harmar þá afstöðu Samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga, að neita að ganga til kjarasamningsviðræðna um hvernig ná megi fram jöfnuði milli almenna og opinbera lífeyriskerfisins, sérstaklega hvað félagsmenn aðildarfélaga SGS og almennt verkafólk í þjónustu sveitarfélaganna varðar, líkt og samið var um í kjarasamningum 7.júlí 2009. Nú þegar hefur stærsta sveitarfélag landsins ákveðið að efna samkomulag aðila fyrir sitt leyti en önnur þverskallast við og neita einfaldlega að ganga til viðræðna um jöfnun lífeyrisréttinda starfsmanna sinna á þeirri forsendu að þau hafi aldrei undirgengist slíka skyldu. SGS hafnar þeirri afstöðu alfarið enda ráð gert fyrir þessari óefndu jöfnun í öllum forsendum og útreikningum aðila eftir 2009.
Formannafundur SGS samþykkir því að sambandið muni höfða mál fyrir Félagsdómi þar sem látið verður reyna á túlkun samningsákvæðisins frá 2009 um skyldu sveitarfélaga til þess að ganga til kjarasamningsviðræðna um jöfnun lífeyrisréttinda.

Nánari upplýsingar:
Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, 894-0729

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com