Skip to main content
AldanVMF

Skemmti- og baráttudagskrá í tilefni 1.maí

By April 30, 2020No Comments

Hittumst heima í stofu!

Eins og ljóst er verður ekki hægt að fagna baráttudeginum okkar á morgun með hefðbundnum hætti. Í staðinn verður sérstökum skemmti- og baráttudagskrám sjónvarpað á N4 og RÚV í tilefni dagsins.

Eins og ljóst er verður ekki hægt að fagna baráttudeginum okkar á morgun með hefðbundnum hætti. Í fyrsta skipti síðan 1923 getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí til að leggja áherslur á kröfur sínar. Í staðinn verður sérstökum skemmti- og baráttudagskrám sjónvarpað á N4 og RÚV í tilefni dagsins.

Stéttarfélögin á Eyjafjarðarsvæðinu slá saman í þátt sem sýndur verður kl. 13:00 á sjónvarpsstöðinni N4 en þar mun forystufólk félaganna segja frá ýmsum baráttumálum og norðlenskt tónlistarfólk stígur á stokk.

Þá verður einnig á dagskrá RÚV sérstök skemmti- og baráttusamkoma í tilefni dagsins. Samkoman verður haldin í Hörpu að kvöldi 1.maí og henni sjónvarpað á RÚV kl. 19:40.

Landsþekktir tónlistarmenn, skemmtiatriði og hvatningarorð frá forystu verkalýðshreyfingarinnar einkenna þennan viðburð sem verður að teljast sögulegur. Meðal listamanna sem koma fram eru Ragnheiður Gröndal, Bubbi Morthens, Amabadama, Jói P og Króli, Ellen Kristjáns og Auður, Jakob Birgisson uppistandari, KK og Lúðrasveit verkalýðsins.

Þar sem engar verða kröfugöngurnar verður hægt að búa til sitt eigið kröfuspjald á Facebook og sýna stuðning sinn við baráttu verkalýðshreyfingarinnar í verki með því að merkja prófílmyndina sína 1. maí. Við hvetjum til þátttöku í baráttudeginum á Facebook og svo til áhorfs á Rúv um kvöldið.

Að dagskránni í sjónvarpinu og viðburðum á samfélagsmiðlum standa eftirfarandi heildarsamtök launafólks: ASÍ, BHM, BSRB og KÍ. 

Hér má skoða Facebook síðu 1.maí.

Við sendum félagsmönnum okkar og landsmönnum öllum baráttukveðjur og bestu framtíðaróskir í tilefni dagsins

 

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com