Skip to main content
Aldan

Skorað á heilbrigðisráðherra

By March 31, 2016No Comments

Tuttugu og tvö stéttarfélög um allt land á almenna markaðinum og hjá hinu opinbera, Aldan stéttarfélag þar meðtalið, hafa nú skorað á heilbrigðisráðherra að löggilda starfsheitið félagsliði.

Tuttugu og tvö stéttarfélög um allt land á almenna markaðnum og hjá hinu opinbera hafa skorað á heilbrigðisráðherra að löggilda starfsheitið félagsliði. Félagsliðar hafa barist fyrir því að verða löggilt heilbrigðisstétt um árabil en lítið hefur gengið. Löggilding félagsliða er ekki bara mikilvæg fyrir framgang stéttarinnar heldur ekki síður fyrir gæði þjónustu við þann vaxandi hóp sem þarf á aðstoð að halda. Fulltrúar félagsliða gengu á fund heilbrigðisráðherra í nóvember síðastliðnum til að tala fyrir löggildingu en engar fréttir hafa borist af framgangi málsins. Á fræðsludegi félagsliða sem haldinn var nýverið kom glögglega í ljós að krafan um löggildingu er sterk innan stéttarinnar enda ólíðandi að félagsliðar sitji ekki við saman borð og sambærilegar stéttir.

Áskorunina má sjá hér.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com