Skip to main content
Aldan

Spánaríbúð

By September 19, 2017No Comments

Minnum á íbúðina okkar í raðhúsahverfinu Altomar á Spáni en hverfið er rétt sunnan við Alicante borg. Akstur frá Alicante flugvelli til hverfisins tekur um 15 mínútur, en um 20 mín akstur er inn í miðborg Alicante. Auðvelt er að taka bílaleigubíl frá flugvelli og auðvelt að fylgja leiðbeiningum til áfangastaðar.

Íbúðina á Aldan í sameign með þremur öðrum stéttarfélögum og sér Verkalýðsfélag Vestfirðinga  (Verk Vest) um útleigu íbúðarinnar fyrir hönd allra félaganna.

Íbúðin er í lokuðum kjarna þar sem enginn kemst inn nema hafa lykil eða aðgangsheimilid. Hún er vel búin öllum helstu þægindum, með loftkælingu og nettengingu og jafnframt er mjög gott aðgengi að íbúðinni. Gistipláss er fyrir 6 fullorðna í tveimur herbergjum og svefnsófa í stofu og einnig fylgir ferðabarnarúm. Raðhúsakjarninn er mjög snyrtilegur en fyrir miðju kjarnans er sameiginleg sundlaug með barnalaug sem aðeins íbúarnir hafa aðgang að. Við hliðina á sundlauginni er stigahús niður í bílastæðakjallarann en stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.

Los Arenales er strandbær sem býður upp á alla nauðsynlega þjónustu með verslunum og veitingastöðum. Mjög stutt er frá íbúðakjarnanum niður á ströndina sem er í 5 – 10 mínútna göngufæri (athugið að þó þarf að ganga um frekar bratta brekku til að komast niður á ströndina).  Strandlengja Los Arenales er nánast samfelld sandfjara í átt til Alicante í norðri og til Santa Pola í suðri. Þar er mjög fjölbreytt þjónusta með úrvali veitingastaða, stórmarkaða og verslana. Um 10 mínútna akstur er til Sant Pola og um 5 mínútna akstur til Gran Alicant sem er þjónustukjarni sem ekið er í gegnum frá flugvellinum á leið til Altomar III. Um 40 mínútna akstur er frá Los Arenales til Torriveija.

Leiga
Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verk Vest, sér um útleigu íbúðarinnar. Félagsmenn eru því beðnir að snúa sér til skrifstofu Verk Vest á Ísafirði með bókanir og frekari upplýsingar í síma 456 5190 á opnunartíma virka daga frá kl.08:00 – 16:00 eða með tölvupósti á netfangið postur@verkvest.is

Gert er ráð fyrir að þriðjudagar verði skiptidagar í sumarleigu. Leigutakar geta komið í íbúð kl.19:00 en brottför úr íbúð er í síðasta lagi kl. 11:00.
 Sumartímabilið er frá 1.maí -30.sept. og þá er leigutíminn alltaf tvær vikur sem kostar  93.000 krónur.
 Á tímabilinu 1.okt. – 30.apríl er leigutíminn að lágmarki ein vika og kostar hún  49.000 krónur. Brottfarargjald er innifalið í leigu.

Ýttu hér til að sjá hvaða tímabil eru laus

Félögin hafa sett sameiginlegar umgengnisreglur sem gilda hjá öllum félögunum vegna leigu á Vinaminni. Umgengnisreglur munu fylgja öllum leigusamningum ásamt leiðbeiningum um staðsetningu.

Myndband um Altomar III

 Sjá nánar um íbúð á heimasíðu Verkalýðsfélags Vestfirðinga
 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com