Starfsgreinasamband Íslands óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf framkvæmdastjóra. Um er að ræða afar fjölbreytt og krefjandi starf. Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember nk.
Starfsgreinasamband Íslands óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf framkvæmdastjóra. Um er að ræða afar fjölbreytt og krefjandi starf.
Starfssvið:
•Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri
•Stefnumótun og framkvæmd ákvarðana
•Umsjón með gerð og túlkun kjarasamninga
•Umsjón með kynningarstarfi, útgáfu og samskiptum við fjölmiðla
•Skipulagning samráðs og samstarfs aðildarfélaga
•Samskipti við innlend og erlend aðildarfélög
Menntunar- og hæfniskröfur:
•Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
•Reynsla af stjórnun og rekstri
•Reynsla og þekking á málefnum stéttarfélaga og kjarasamningum
•Góð hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfileikar
•Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti
•Góð kunnátta í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli
Starfsgreinasamband Íslands er stærsta landssamband innan ASÍ og samanstendur af 19 stéttarfélögum verkafólks með um 57 þúsund félagsmenn. Hlutverk sambandsins er að styðja og styrkja aðildarfélögin í þeirra starfi og hagsmunabaráttu félagsmanna þeirra. Skrifstofa sambandsins er í Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til og með 15. november nk.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is.