Skip to main content
Aldan

Starfsgreinasambandið slítur kjaraviðræðum

By March 18, 2019No Comments

Fréttatilkynning frá SGS.

Starfsgreinasamband Íslands hefur ákveðið að slíta kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins (SA) eftir árangurslausan fund hjá ríkissáttasemjara í dag.

Starfsgreinasamband Íslands hefur ákveðið að slíta kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins (SA) eftir árangurslausan fund hjá ríkissáttasemjara í dag. Síðastliðinn föstudag samþykkti viðræðunefnd Starfsgreinasambandsins einróma að ef ekki kæmu fram nýjar hugmyndir eða viðbrögð frá Samtökum atvinnulífsins um helgina hefði viðræðunefnd sambandsins fulla heimild til þess að slíta kjaraviðræðum. Engar nýjar hugmyndir eða tillögur hafa komið fram frá Samtökum atvinnurekenda.
Því hefur viðræðunefnd Starfsgreinasambandsins slitið kjaraviðræðum og mun í kjölfarið sækja heimild til aðgerða frá félagsmönnum.

Reykjavík 18. mars 2019.

Nánari upplýsingar: Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, í síma 894 0729.
 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com