Skip to main content
VMF

Stjórn LÍV lýsir ánægju með skýrslu úttektarnefndar

By February 8, 2012No Comments

Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna lýsir ánægju með útgáfu skýrslu sem unnin var um starfsemi, fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegt umhverfi lífeyrissjóða á Íslandi. Mikilvægt er að uppbyggileg og yfirveguð umræða fari fram um niðurstöður úttektarnefndarinnar, þar sem lífeyrissjóðirnir gegna mjög veigamiklu hlutverki í að treysta og tryggja afkomugrundvöll sjóðfélaga, bæði í nútíð og framtíð. Þetta kemur m.a. fram í ályktun sem stjórnin hefur sent frá sér.

Skýrsla úttektarnefndar um lífeyrissjóði
 
Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna lýsir ánægju með útgáfu skýrslu sem unnin var um starfsemi, fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegt umhverfi lífeyrissjóða á Íslandi. Mikilvægt er að uppbyggileg og yfirveguð umræða fari fram um niðurstöður úttektarnefndarinnar, þar sem lífeyrissjóðirnir gegna mjög veigamiklu hlutverki í að treysta og tryggja afkomugrundvöll sjóðfélaga, bæði í nútíð og framtíð.
 
Það veldur miklum vonbrigðum hversu miklir fjármunir glötuðust hjá lífeyrissjóðunum vegna þess kerfishruns sem átti sér stað árið 2008. Þrátt fyrir þetta mikla tap hafa sjóðirnir staðið af sér mesta efnahagslega áfall sem dunið hefur yfir frá því að lífeyrissjóðakerfið var stofnsett og bendir flest til að almennu sjóðirnir muni á komandi árum geta rétt stöðu sína við og staðið undir þeim skuldbindingum sem á þeim hvíla.
 
Eitt af því alvarlegasta sem skýrsla úttektarnefndarinnar varpar skýrara ljósi á en áður, er sá hrópandi mismunur sem landsmenn búa við, eftir því hvort iðgjöld þeirra renna í hina opinberu lífeyrissjóði eða hina almennu. Það  er óþolandi að þegar sjóðfélagar almennu sjóðanna hafa tekið á sig skerðingu réttinda, skuli þeir á sama tíma standa frammi fyrir aukinni skattbyrði til þess að hægt sé að viðhalda óbreyttu réttindakerfi opinberu sjóðanna.
 
Í yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands frá 5. maí 2011 er því heitið að vinna að jöfnun réttinda sjóðfélaga í landinu. Þá vinnu verður að hefja nú þegar, ekki síst í ljósi þeirrar mismununar sem skýrsla úttektarnefndarinnar undirstrikar með óyggjandi hætti.
Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com