Skip to main content
Stéttarfélag.is

Stjórnvöld verða að standa með þolendum mansals

By April 16, 2024No Comments
Mansal
Rúmar fimm vikur eru liðnar frá aðgerðum lögreglu þann 5. mars sl., þegar veitingastöðum í eigu Davíðs Viðarssonar var lokað og þau skilaboð gefin út til ætlaðra þolenda að framtíð þeirra á Íslandi yrði tryggð.Nú í vikunni kynntu stjórnvöld loksins fyrir ætluðum þolendum útfærslu sína á því sem skiptir fólkið mestu fyrir framtíð þeirra á Íslandi, þ.e.a.s. hvaða dvalar- og atvinnuleyfi standa þeim til boða.

Með útfærslu stjórnvalda er einungis hluta hópsins tryggð öll þau sömu réttindi og þau höfðu fyrir 5. mars, það er framhaldandi rétt til fjölskyldusameiningar og óskertan rétt til að sækja um ótímabundið dvalarleyfi.

Sá hluti hópsins sem ekki er kominn í nýtt starf fer hins vegar, að óbreyttu, á svokallað umþóttunarleyfi fyrir þolendur mansals, að mánuði liðnum. Fólki er með öðrum orðum gefinn frestur til 15. maí til að finna nýtt starf, að öðrum kosti fara þau á síðra dvalarleyfi en þau voru á þann 5. mars og í einhverjum tilfellum er fyrirhuguð fjölskyldusameining í uppnámi.

Útfærsla stjórnvalda í málinu er undirrituðum mikil vonbrigði. ASÍ hefur um langt skeið bent á mikilvægi þess að í málum sem þessum sé framtíð ætlaðra þolenda tryggð og í því samhengi skiptir höfuðmáli að réttindi þolenda hvað varðar dvalar- og atvinnuleyfi verði ekki lakari en þau voru áður en ráðist var í aðgerðirnar.

ASÍ hefur ítrekað gert grein fyrir þessum sjónarmiðum frá því að málið kom upp, m.a. á fundum með dómsmálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra. Framangreind sjónarmið byggja m.a. á hinum ýmsu skýrslum og meðmælum alþjóðastofnana og sérfræðinga um hvernig best sé að haga viðbrögðum er upp koma vinnumansalsmál. Sjónarmið sem byggja á sérstaklega flóknu eðli slíkra afbrota. Hér skiptir öllu að stjórnvöld standi með þolendum.

Um er að ræða fólk sem hefur lagt á sig miklar fjárhagslegar og sálrænar fórnir til að geta búið sér og fjölskyldum sínum trygga framtíð á Íslandi. Fólkið kom til Íslands eftir að hafa selt allar eigur sínar í heimalandinu, með draum um að leggja hart að sér í vinnu og skapa sér bjartari framtíð.

Að mati undirritaðra er fyrirliggjandi niðurstaða stjórnvalda afleit. Verði henni ekki breytt og sanngjarnt tillit tekið til stöðu og hagsmuna þess fólks sem málið varðar eru allar líkur á að til lengri tíma verði þolendur vinnumansals ekki tilbúin til samstarfs við að upplýsa mál sem varða skipulagða brotastarfsemi í landinu. Því verður ekki trúað að vilji stjórnvalda sé sá að gefið verði eftir í baráttu gegn svo alvarlegum lögbrotum.

Með vísan í allt framangreint skora undirrituð á stjórnvöld að endurskoða afstöðu sína, standa með þolendum og gera betur.

 

Saga Kjartansdóttir,
sérfræðingur á lögfræði- og vinnumarkaðssviði

Halldór Oddsson,
sviðsstjóri lögfræði- og vinnumarkaðssviðs

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com