Skip to main content
VMF

Stytting vinnuvikunnar

By October 28, 2019No Comments

Í síðustu kjarasamningum var samið um styttingu vinnutíma félagsmanna LÍV/VR, 9 mínútur á dag fyrir starfsmann í fullu starfi. Þessar 9 mínútur jafngilda 45 mínútum á viku eða 3. klst og 15 mínútum á mánuði, án skerðingar launa. Markmiðið er að gera vinnumarkaðinn fjölskylduvænni.

Framkvæmd styttingarinnar er samkomulag félagsmanna og atvinnurekenda á hverjum vinnustað fyrir sig. Atvinnurekendur og starfsfólk skulu hafa komist að samkomulagi um hvernig styttingunni verður háttað ekki síðar en þann 1. desember.

Ef starfsfólk og atvinnurekendur komast ekki að samkomulagi um útfærslu styttingarinnar verður hver vinnudagur sjálfkrafa 9 mínútum styttri frá og með 1. janúar.

Lykildagsetningar:

1. desember 2019: Aðilar skulu hafa komist að samkomulagi um útfærslu styttingarinnar.
1. janúar 2020: Stytting tekur gildi.

Nánari upplýsingar um útfærslu er að finna á www.vr.is/9min

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com