Skip to main content

4. þingi Starfsgreinasambands Íslands lauk rétt eftir hádegi í dag á Akureyri.Þingið var haldið undir yfirskriftinni Samstaða og Samvinna og þótti takast einkar vel. Næstu verkefni eru kjarasamningar en SGS fer með umboð sextán aðildarfélaga sinna í viðræðunum.

4. þingi Starfsgreinasambands Íslands lauk rétt eftir hádegi í dag á Akureyri.Þingið var haldið undir yfirskriftinni Samstaða og Samvinna og þótti takast einkar vel.

Samþykktar voru fjórar ályktanir; um atvinnumál, húsnæðismál, kjaramál og ríkisfjármál. Að auki var starfsáætlun til tveggja ára samþykkt og fræðslustefna Starfsgreinasambands Íslands.

Björn Snæbjörnsson (Eining-Iðja) var endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir (Afl starfsgreinafélag) var sömuleiðis endurkjörinn varaformaður. Framkvæmdastjórn sambandsins er óbreytt en í henni sitja Aðalsteinn Á. Baldursson (Framsýn stéttarfélag) Halldóra Sveinsdóttir (Báran stéttarfélag), Kolbeinn Gunnarsson (Vlf. Hlíf), Signý Jóhannesdóttir (Stéttarfélag Vesturlands) og Sigurður Bessason (Efling stéttarfélag).
 
Þingið var haldið undir yfirskriftinni Samstaða og Samvinna og var það mál fólks að sá hafi verið andinn á þinginu.
Næstu verkefni eru kjarasamningar en SGS fer með umboð sextán aðildarfélaga sinna í viðræðunum.
 
Ályktanir þingsins má nálgast hér á heimasíðu SGS.
 
Á fyrri myndinni má sjá þingfulltrúa og á þeirri seinni varaformann og formann SGS, þau Hjördísi Þóru Sigurþórsdóttur og Björn Snæbjörnsson sem voru endurkjörin til næstu tveggja ára.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com