Skip to main content
Aldan

Tillaga uppstillingarnefndar til stjórnarkjörs

By February 4, 2016No Comments

Vegna aðalfundar Öldunnar stéttarfélags hefur trúnaðarráð samþykkt tillögu uppstillingar-nefndar til stjórnarkjörs til næstu tveggja ára. Þetta árið er kosið um sæti varaformanns, vararitara og tveggja meðstjórnenda.

Vegna aðalfundar Öldunnar stéttarfélags hefur trúnaðarráð samþykkt tillögu uppstillingarnefndar til stjórnarkjörs til næstu tveggja ára. Þetta árið er kosið um sæti varaformanns, vararitara og tveggja meðstjórnenda.

Í samræmi við lög félagsins auglýsir kjörstjórn hér með hverjir skipa A –lista til stjórnarkjörs.

Tillagan er eftirfarandi:

Hjördís Gunnarsdóttir, varaformaður.
Ágúst Marinósson, vararitari.
Guðbjörg Særún Björnsdóttir, meðstjórnandi.
Jón Ægir Ingólfsson, meðstjórnandi.

Frestur, til að leggja fram aðra lista, rennur út kl. 12.00 þann 22. febrúar 2016. Er hvert það framboð gilt sem fram kemur innan þess tíma sem er fullmannað og hefur skriflegt samþykki þeirra sem eru í framboði og meðmæli a.m.k. 30 fullgildra félaga.

Komi fram fleiri en einn listi skal kjörstjórn láta kjósa um þá í allsherjaratkvæðagreiðslu í fyrsta lagi 1. apríl og í síðasta lagi 10. apríl.

Komi hins vegar ekki fram fleiri listar teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir.

Kosningu skal lýst á aðalfundi og tekur þá nýkjörin stjórn við félaginu.

Fullgildir framboðslistar skulu hafa borist kjörstjórn á skrifstofu stéttarfélaganna í síðasta lagi kl. 12:00 þann 22. febrúar næstkomandi.

Allar upplýsingar um framlagningu lista eru veittar á skrifstofu stéttarfélaganna, að Borgarmýri 1, 550 Sauðárkróki, eða í síma: 453-5433.

 

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com