Skip to main content
Aldan

Tryggjum aðgengi að heilbrigðisþjónustu fyrir alla

By May 28, 2019No Comments

Fréttatilkynning frá formannafundi Starfsgreinasambands 24. maí 2019.

 

Formannafundur SGS sem haldinn var á Hallormsstað 24. maí 2019 sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu:

Á undangengnum árum hefur verulega verið dregið úr þjónustu við þá sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda, sérstaklega á landsbyggðinni. Fyrir liggur að þeir þurfa oft að ferðast um langan veg með tilheyrandi kostnaði og tekjutapi. Það á einnig við um aðstandendur.

Mun algengara er að fólk neiti sér um að sækja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar hér á landi en í nágrannalöndunum. Greiðsluþáttökukerfið tekur afar takmarkað tillit til ferða og dvalarkostnaðar fólks af landsbyggðinni. Þessi þróun og fyrirkomulag er til skammar fyrir íslenskt samfélag og algerlega óásættanleg.

Starfsgreinasamband Íslands krefst þess að þegar í stað verði gripið til aðgerða til tryggja jafnt aðgengi landsmanna að allri heilbrigðisþjónustu. Starfsgreinasambandið mun aldrei samþykkja að hagræðingu og sparnaði í heilbrigðiskerfinu verði mætt með þeim hætti að auka álögur á fólk og aðstandendur þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda. Það er ekki samfélag sem við viljum kenna okkur við.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com