Skip to main content

Tryggingastofnun ríkisins hefur hingað til hagað upphafsgreiðsludegi
endurhæfingarlífeyris þannig að greiðslur hefjist ekki fyrr en fyrsta dag næsta mánaðar eftir að veikindarétti og greiðslurétti úr sjúkrasjóði er lokið. Þessu hefur nú verið hrundið og greiðslur eiga að hefjast samdægurs.

Tryggingastofnun ríkisins hefur hingað til hagað upphafsgreiðsludegi
endurhæfingarlífeyris þannig að greiðslur hefjist ekki fyrr en fyrsta
dag næsta mánaðar eftir að veikindarétti og greiðslurétti úr sjúkrasjóði er lokið. Þessu hefur nú verið hrundið og greiðslur eiga að hefjast samdægurs.

Í kærumáli til Úrskurðarnefndar almannatrygginga nr. 240/2013 frá 29.1 2014 (óbirtur), sem Stéttarfélag Vesturlands f.h. félagsmanns síns fór með fyrir nefndina, voru atvik þau að félagsmaður tæmdi rétt sinn úr sjúkrasjóði félagsins þann 8.6. 2013. Samkvæmt úrskurði TR þann 11.6 2013 átti hann rétt á endurhæfingarlífeyri.
Með vísan til laga taldi TR að þær greiðslur ættu ekki að hefjast fyrr en
þann 1.7 2013 og félagsmaðurinn hefði því átt að vera bótalaus í 22 daga.
Þetta var kært og þess krafist að greiðslur hæfust daginn sem greiðslurétti í sjúkrasjóði lyki. Á þetta féllst úrskuðarnefndin.

Ljóst er að úrskurður þessi getur haft áhrif á réttarstöðu fjölda launafólks í sömu sporum.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com