Í frétt sem birtist á vef Starfsgreinasambands Íslands er fjallað um vinnustaðaskírteinin og staðal sem kveður á um hvernig skírteinin skuli líta út til að geta talist fullgild.
Með útgáfu þessa staðals fjölgar þeim starfsgreinum sem falla undir lögin um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Starfsgreinasamband Íslands vill vekja athygli á að í byrjun september s.l. var gefinn út staðall fyrir útgáfu vinnustaðaskírteina. 
Í staðlinum er m.a. kveðið á um hvað skírteinin þurfa að uppfylla til að teljast gild.  
Í meginatriðum skulu skírteinin vera framleidd úr hörðu efni og á þeim skal koma fram nafn og kennitala bæði atvinnurekanda og starfsmanns 
og starfsheiti viðkomandi ásamt mynd af starfsmanninum.  
Í samkomulagi ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini er kveðið á um að þremur mánuðum eftir útgáfu staðalsins skulu öll ný skírteini gefin út í 
samræmi við hann og er miðað  við áramótin 2012-13.  
Þar er einnig kveðið á um  að endurgerð skírteina sem gefin voru út fyrir gildistöku staðalsins skuli lokið sex mánuðum frá gildistöku hans, 
þ.e. um mánaðarmótin mars-apríl 2013.  
Einnig er vakin athygli á að með útgáfu staðalsins fjölgar þeim starfsgreinum sem falla undir lögin um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Nálgast má upptalningu á öllum þeim atvinnu- og starfsgreinum sem falla undir lögin á vefsíðunni www.skirteini.is.
Hægt er að nálgast staðalinn hjá Staðlaráði Íslands gegn greiðslu.

